FH með fullt hús stiga | KA vann nauman sigur 25. febrúar 2017 17:56 Kristján Flóki Finnbogason skoraði í dag. vísir/eyþór
Íslandsmeistararnir í FH byrja Lengjubikarinn vel en FH vann annan leikinn í röð 2-1 gegn Víking Reykjavík í dag og er því með fullt hús stiga eftir tvær umferðir í riðli 1 í A-deild. Emil Pálsson kom FH yfir með snyrtilegu skallamarki eftir fyrirgjöf Böðvars Böðvarssonar en FH bætti við öðrum marki skömmu fyrir lok fyrri hálfleiks þegar Kristján Flóki Finnbogason skoraði eftir mistök í vörn Víkinga. Arnþór Ingi Kristinsson náði að minnka muninn eftir aukaspyrnu Ívars Arnars Jónssonar en korteri fyrir leikslok misstu FH-ingar Emil af velli þegar hann fékk annað gula spjald sitt. Þrátt fyrir að leika gegn tíu leikmönnum komust leikmenn Víkings ekki lengra og fögnuðu FH-ingar því sigri.Sjá einnig:Jafnt hjá Breiðablik og Grindavík Í seinni leik dagsins vann KA 2-1 sigur á Gróttu í Akraneshöllinni en Ásgeir Sigurgeirsson skoraði bæði mörk KA í leiknum. Kom hann Akureyringum yfir á 9. mínútu og bætti við á 47. mínútu. Seltirningum tókst að minnka muninn á 56. mínútu en þeim tókst ekki að nýta sér að leika manni fleiri síðustu mínúturnar eftir að Aleksandar Trinic var vikið af velli með beint rautt spjald á 87. mínútu. Grótta er því áfram án stiga í 1 riðli A-deildar en KA er komið á blað með þrjú stig. Upplýsingar um markaskorara koma frá Fotbolti.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið „Höfum gleymt ástæðunni fyrir því að VAR var tekið upp“ Enski boltinn Nýr kynjakvóti FIFA: Öll kvennalandslið verða að hafa kvenþjálfara Fótbolti Rafmagnað klúður í brasilíska fótboltanum Fótbolti „Vona bara að landsliðsþjálfarinn hafi verið að horfa“ Körfubolti 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Íslenski boltinn „Algjörlega óviðunandi að senda mína leikmenn út í óvissuna“ Körfubolti Mögulegt að sjö efstu komist í Meistaradeild Evrópu Fótbolti Segir að Tómas Bent ætli að spila með grímu Fótbolti Ekki gott kvöld fyrir Ísland í Evrópu- og Sambandsdeildinni Fótbolti Dagskráin: Körfuboltakvöld, Man. United í beinni og úrslitaleikur um sæti í Bónus Sport Fleiri fréttir 37 ára Gylfi stefnir á EM 2028 Sögulegur samningur Víkinga Þjálfari HK-kvenna braut siðareglur „Hausinn minn ekki víraður eins og hinir“ Heimir Guðjóns er kominn með Fylkismenn alla leið í úrslitaleikinn Kemur alltaf í Þór Blikakonur með þriðja stórsigurinn í röð Sjáðu mörkin er KR valtaði yfir Stjörnuna og flaug áfram í úrslitaleikinn Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Sjá meira