Skoðun

Mikil uppbygging íbúðarhúsnæðis í Reykjavík

Hjálmar Sveinsson skrifar
Ég skrapp um daginn upp í Bryggjuhverfi. Bygging 300 nýrra íbúða í skemmtilega litríkum húsum í hverfinu er langt komin og fólk flutt inn í nokkur húsanna. Drög að nýju deiliskipulagi þar fyrir vestan, á hluta af svæði Björgunar, gera ráð fyrir allt að 900 íbúðum. Ég gekk upp á heilmikla mön sem skilur íbúðarhverfið og athafnasvæði Björgunar að og virti fyrir mér lygnan Grafavoginn, gamla sjávarkletta, sandhrúgur og steypusíló. Mönin mun brátt hverfa og Bryggjuhverfið verður með tíð og tíma hluti af mikilli byggð við Elliðaárósa og Ártúnshöfða. Á þessu svæði í heild sinni gætu risið um 4.500 íbúðir. Hinum megin við Elliðaárnar er svokölluð Vogabyggð. Þar verða á næstu árum byggðar um 1000 íbúðir. Stærsti áfangi Vogaskipulagsins hlaut um daginn skipulagsverðlaun ársins 2016. Framkvæmdir eru í þann veginn að hefjast þar.

5000 íbúðir

Það er mikið að gerast í Reykjavík þessa dagana og misserin. Nú liggur fyrir samþykkt og lögbundið deiliskipulag fyrir rúmlega 5000 íbúðir á byggingarsvæðum í borginni. Framkvæmdir eru hafnar á byggingarsvæðum með 2577 íbúðum. Eitt mesta uppbyggingarskeið í sögu Reykjavíkur er hafið. Deiliskipulagsvinnan tryggir að uppbyggingin verður í takt við vandað aðalskipulag borgarinnar og skýra stefnu um þétta og vistvæna borg.

Þeir sem eru á ferð um borgina sjá þetta með eigin augum á hverjum einasta degi. Ákkúrat núna í marsbyrjun 2017 er húsnæðissamvinnufélagið Búseti að klára rúmlega 200 íbúðir við Smiðjuholt, Félagsstofnun stúdenta vígði 103 stúdentaíbúðir við Brautarholt rétt fyrir jól og um 80 íbúðir eru í byggingu á Höfðatorgi. Byrjað er að byggja 200 íbúðir við Hverfisgötu og um 70 íbúðir við svokallað Hafnartorg. Á gamla Lýsisreitnum vestur í bæ eru 130 íbúðir að klárast og bygging 176 íbúða í Vesturbugt mun hefjast á þessu ári. Hafin er uppbygging á stórri lóð Ríkisútvarpsins. Þar verða byggðar um 360 íbúðir. Og það blasir við öllum sem fara um Bústaðaveg og Hringbraut að stórfelld uppbygging er hafin við Hlíðarenda. Þar er gert ráð fyrir að minnsta kosti 600 íbúðum. Að öllum líkindum hefst uppbygging á 300 íbúðum á Kirkjusandsreit á þessu ári. Sama má segja um byggingu 220 stúdentaíbúða á Vísindagarðareit við Háskóla Íslands. Auk þess liggja fyrir drög að skipulagi sem gerir ráð fyrir að um 500 nýjar íbúðir verði til á næstu árum í Úlfarsárdalnum.

Fyrirheit um öryggi og skjól

Borgaryfirvöld hafa lagt ríka áherslu á að íbúðir í uppbyggingu verði fjölbreytilegar að stærð svo þær henti sem flestum. Á stórum byggingarsvæðum hefur borgin náð fram þeim samningsmarkmiðum sínum að 25% íbúðanna verði leiguíbúðir til að tryggja enn betur fjölbreytni á húsnæðismarkaðnum. Einnig hefur verið lögð áhersla á samstarf við byggingarfélög sem eru ekki hagnaðardrifin, svo sem Búseta, Félagsstofnun stúdenta, Byggingarfélag námsmanna og Samtök aldraðra. Þá hefur verið skrifað undir viljayfirlýsingu um uppbyggingu 1000 íbúða á vegum Alþýðusambands Íslands í Reykjavík. Í orðinu húsnæði felst fyrirheit um öryggi og skjól. Húsnæðismálin eru eitt stærsta viðfangsefni Reykjavíkurborgar.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Þöggun

Guðbjörg Ása Jóns Huldudóttir,Margrét Kristín Blöndal,Margrét Rut Eddudóttir,Lukka Sigurðardóttir,Sigtryggur Ari Jóhannsson,Halldóra Jóhanna Hafsteins Âû skrifar

Sjá meira


×