Skoðun

Bráðum verðum við ó­sýni­leg

Ágúst Mogensen skrifar

Þrátt fyrir þá staðreynd að á hverju ári hverfum við sjónum hvors annars þegar myrkrið heimtar stærri og stærri skerf af sólhringnum, þá ganga enn um götur og torg einstaklingar sem enginn sér. Þetta eru hvorki framliðið fólk né óprúttnir aðilar sem vilja fela sig í myrkrinu, heldur bara venjulegt fólksem hefur gleymt að huga að sýnileika sínum, með því að setja á útifötin sín lítið merki eða límmiða sem endurvarpar ljósi svo ökumenn sjái það í myrkrinu.

Undir lok október er sólarupprás um 9 á morgnanna og sólin sest um kvöldmatarleytið. Þeir sem eru á leið til skóla og vinnu á þessum tíma gera það því í myrkri og sama gildir um útihreyfingu eftir kvöldmat, hvort sem farið er út að skokka eða ganga með hundinn. Sem betur fer er götulýsing víða góð en á hana er ekki alltaf að treysta í dembu eða dimmum éljum. Í dökkum fötum verðum við nær ósýnileg við þessar aðstæður og það skapar mikla slysahættu.

Ef við erum ekki með endurskinsmerki sjá ökumenn okkur í um 20-30 metra fjarlægð, en með endurskinsmerki fimmföldum við þessa vegalengd hið minnsta í 150 metra. Í beinni sjónlínu og stilltu veðri getur endurskinsmerki sést í 300 metra fjarlægð í myrkrinu.

Staðsetning endurskinsmerkja

Staðsetjum endurskin á ökkla, úlnlið, hné eða pedala reiðhjóls, því bílstjórar greina þá hreyfingu sem þeir tengja við mannslíkamann. Hugur okkar þekkir göngulag og handahreyfingar og tengir takt endurskinsmerkis sem staðsett er á þessum liðamótum strax við manneskju.

Mörg okkar treysta á eitt lítið endurskinsmerki hangandi á jakkanum, en rannsóknir og reynsla sýna að sýnileikinn verður mestur þegar endurskin er staðsett neðarlega á líkamanum þar sem hreyfingin er mest. Endurskin á ökklum og úlnliðum getur skipt sköpum þegar ökumaður þarf að átta sig á því að einstaklingur sé að fara yfir götu eða ganga meðfram vegi.

Einnig er mikilvægt að muna að endurskin nýtist aðeins þegar ljós fellur á það. Því meira sem endurskin sést frá mismunandi sjónarhornum, því fyrr tekur ökumaður eftir þér. Endurskinsvesti, armbönd eða endurskinsræmur á fatnaði geta því aukið öryggi verulega.

Ert þú með endurskinsmerki á?

  • Á vetrarjakkanum?
  • Á skólatöskunni?
  • Á hundinum?
  • Á hlaupafatnaðinum?
  • Á hjólinu?
  • Á hestinum?
  • Viðvörunarþríhyrning í bílnum?

Fyrir unglinga og ungmenni með djúpa tískuvitund er hægt að kaupa endurskinslímmiða sem má klippa út í því formi sem uppfyllir tískustaðla þeirra eða klippa út einfaldar og látlausar ræmur sem lítið þarf að fara fyrir. Það er því ekkert því til fyrirstöðu að allir séu sýnilegir í myrkrinu.

Við sjáum okkur oft sem sýnilegri en við erum í raun. Þó þú sjáir bílinn þýðir það ekki endilega að ökumaðurinn sjái þig. Með einföldum aðgerðum eins og góðu endurskini verðum við sýnileg úr mun meiri fjarlægð og gefum ökumönnum þann tíma sem þeir þurfa til að bregðast við.

Sjáumst í vetur.

Höfundur er sérfræðingur í forvörnum hjá Verði tryggingum.




Skoðun

Skoðun

7 er ekki lengur 7

Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar

Sjá meira


×