Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar 24. október 2026 06:32 Íslensk sveitarfélög verja ríflega helmingi skatttekna sinna til menntamála. Hvergi meðal OECD-ríkja er hærra hlutfalli landsframleiðslu varið til grunnskóla en á Íslandi. Þrátt fyrir það hefur námsárangur íslenskra nemenda dalað meira en í flestum samanburðarlöndum undanfarin áratug. Þessar staðreyndir kalla ekki á aukið fjármagn heldur fyrst og fremst umræðu um hvernig þeim fjármunum er varið. Í skólakerfinu eru fjármunir að stórum hluta tími. Tími kennara með nemendum, til undirbúnings, samstarfs og fagþróunar. Ef bæta á árangur þarf að horfa á hvernig þessum tíma er ráðstafað. Þar blasir við ákveðin þversögn. Ríkið mótar stefnu menntamála. Sveitarfélögin reka hins vegar grunnskólana, greiða laun kennara og standa undir stærstum hluta kostnaðarins. Þrátt fyrir það hafa þau oft takmörkuð áhrif á þá þætti sem ráða mestu um nýtingu tíma og fjármuna í skólastarfinu. Starfsþróun kennara er gott dæmi. Sveitarfélög verja árlega rúmum tveimur milljörðum króna til starfsþróunar kennara og stjórnenda. Þátttaka er nær algild, en samkvæmt TALIS-könnun töldu aðeins 57% kennara að starfsþróunin hefði jákvæð áhrif á kennslu þeirra. Enginn efast um mikilvægi starfsþróunar. Spurningin er hvort fjármagnið nýtist með þeim hætti sem best styður við gæði kennslu. Þar hafa sveitarfélögin takmarkað svigrúm til að hafa áhrif, þrátt fyrir að bera kostnaðinn. Þau greiða inn í kerfið en hafa lítil áhrif á hvernig fjármunum er ráðstafað til að styðja við markmið þeirra skóla sem þau reka. Það þarf aðgerðir - ekki fleiri skýrslur Það sem íslensk menntamál þurfa nú er ekki enn ein skýrslan, enn eitt átakið eða enn ein stefnuyfirlýsingin. Við búum nú þegar yfir mikilli þekkingu. Við vitum að Ísland ver miklum fjármunum til grunnskóla. Við vitum að námsárangur hefur dalað. Við vitum að kennarar verja verulegum tíma í verkefni sem ekki snúa beint að kennslu og við vitum að fjármunir til starfsþróunar skila sér ekki alltaf með skýrum hætti inn í kennslustofuna. Raunverulega verkefnið er að skapa sameiginlega sýn á hvernig við nýtum þá fjármuni og þann mannauð sem fyrir hendi er. Það verður ekki gert af ríkinu einu saman. Ríkið ber ábyrgð á stefnumótun menntakerfisins. Sveitarfélögin bera ábyrgð á framkvæmdinni. Þau reka skólana, standa undir stærstum hluta kostnaðarins og búa yfir reynslunni af því hvernig ákvarðanir og stefnur birtast í skólastarfinu frá degi til dags. Þess vegna er óraunhæft að ætla að árangursrík framtíðarsýn fyrir íslenskt menntakerfi verði mótuð án virkrar aðkomu sveitarfélaga. Reynslan sýnir að lönd sem hafa náð árangri í menntamálum hafa byggt á skýrri langtímastefnu þvert á kjörtímabil og nýtur stuðnings bæði þeirra sem marka stefnuna og þeirra sem bera ábyrgð á að hrinda henni í framkvæmd. Eftir því samtali kalla sveitarfélögin nú. Samtali um það hvernig við ætlum að bæta námsárangur til lengri tíma. Hvernig við ætlum að styðja betur við starf kennara. Hvernig við ætlum að byggja upp innviði skólakerfisins. Og hvernig við tryggjum að þeir sem bera ábyrgð á rekstrinum hafi raunverulega möguleika til að hafa áhrif á þá þætti sem skipta mestu máli fyrir gæði skólastarfs. Því á endanum snýst þetta ekki um ríkið eða sveitarfélögin. Þetta snýst um nemendur. Höfundur er sviðsstjóri stjórnsýslusviðs Sambandsins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skóla- og menntamál Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun