Öldungaþingmenn finna engar sannanir um hleranir gegn Trump Samúel Karl Ólason skrifar 16. mars 2017 18:10 Donald Trump. Vísir/EPA
Leyniþjónustumálanefnd öldungadeildar þings Bandaríkjanna fann engar sannanir fyrir því að Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hefði verið hleraður. Hann hefur haldið því fram að Barack Obama, forveri hans, hafi fyrirskipað hleranir á símum í Trump-turni fyrir forsetakosningarnar í janúar. Leiðtogar þingnefndarinnar segja að samkvæmt þeirra upplýsingum hafi enginn armur stjórnkerfis Bandaríkjanna beitt nokkurs konar eftirliti gagnvart turninum, hvorki fyrir né eftir kosningarnar. Njósnamálanefnd neðri deildar þingsins komst að sömu niðurstöðu í gær. Fyrir skömmu tísti Trump um að hann hefði komist að því að Obama hefði látið hlera símana í Trump-turni og kallaði hann Obama „vondan (eða veikan) gaur“.Sjá einnig: Samsæriskenning rataði úr útvarpi á Twitter-síðu forsetans Þá lýsti Trump því yfir í viðtali í gær að hann stæði við ásakanir sínar og boðaði að „athyglisverðar upplýsingar“ kæmu fram á næstu vikum.Obama hefur staðfastlega neitað því að hafa fyrirskipað slíkar hleranir. Þá hefur James Clapper, sem gegndi embætti yfirmanns njósnamála á þeim tíma sem hleranirnar eiga að hafa farið fram, sagt að hann hafi ekki fengið neinar upplýsingar um slíka hlerun.
Forsetakosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Sjá meira