Uppgjörsþáttur Körfuboltakvölds í opinni dagskrá og í beinni á Vísi í kvöld Tómas Þór Þórðarson skrifar 10. mars 2017 13:00 Kjartan Atli Kjartansson og félagar verða í stuði í kvöld. vísir
Síðasti hefðbundni þáttur tímabilsins af Domino´s-Körfuboltakvöldi er á dagskrá í kvöld á Stöð 2 Sport HD en hann verður í beinni útsendingu frá Viking Brugghúsi klukkan 21.15. Þátturinn verður í opinni dagskrá og í beinni á Vísi. Deildarkeppninni lauk í gær með mikilli dramatík og verður seinni hluti tímabilsins gerður upp í þætti kvöldsins. Úrvalsliðið verður valið sem og besti leikmaðurinn, besti ungi leikmaðurinn, besti varnarmaðurinn og þá kemur í ljós hver eru tilþrif ársins. Búið er að klippa til allt það fyndnasta og besta frá vetrinum sem verður sýnt í þættinum, allt frá ógleymanlegum viðtölum til óborganlegra atriða sérfræðinganna í vetur og allt þar á milli. Hlaupið verður á hundavaði yfir 22. umferðina sem lauk í gær og aðeins kíkt á úrslitakeppnina en þátturinn verður annars á léttu nótunum er deildarkeppnin verður gerð upp í máli og myndum. Eins og alltaf þegar Körfuboltakvöld bregður undir sig betri fætinum verður tónlistaratriði en að þessu sinni verður það rímnasmiðurinn úr Kópavoginum, Herra Hnetusmjör, sem tekur lagið. Körfuboltakvöld verður svo á ferð og flugi í úrslitakeppninni eins og í fyrra og sendir út beint frá íþróttahúsum landsins og fylgir tímabilinu eftir allt þar til Íslandsmeistarabikararnir í karla- og kvennaflokkir eru farnir á loft. Ekki missa af uppgjöri Domino´s-Körfuboltakvölds í beinni frá Viking Brugghúsi klukkan 21.15 á Stöð 2 Sport HD í kvöld í opinni dagskrá og á Vísi.
Dominos-deild karla Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira