Lífið

Ný stikla fyrir sjöundu þáttaröð Game of Thrones lofar góðu

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Voðalega andar Cersei köldu.
Voðalega andar Cersei köldu. Skjáskot/Facebook
Sjöunda þáttaröð af Game of Thrones verður frumsýnd 16. júlí næstkomandi.

Glæný stilka fyrir þáttaröðina hefur nú verið birt á Facebook síðu þáttanna og af henni að dæma er augljóst hverjir verða í aðalhlutverkunum.

Ógnin úr norðrinu mun gegna lykilhlutverki í þessari þáttaröð, sem verður sú næstsíðasta um baráttuna um Westeros.

Stikluna má sjá hér fyrir neðan.

Í stiklunni má sjá þau Jon Snow, Deanerys Targaryen og Cersei Lannister. Öll þrjú ganga þau að og setjast í eigin hásæti. Jon Snow, konungur Norðursins, sest í hásæti sitt í Winterfell. Cersei Lannister í hásæti sitt í Kings Landing og Daenerys Targaryen í hásæti, sem líklegast er á eyjunni Dragonstone.

Sú eyja situr ansi skammt frá Kings Landing, fyrir utan Blackwater Bay. Á milli Essos og Westeros. Sjá má staðsetninguna á korti hér.

Targaryen fjölskyldan settist að á Dragonstone eftir fall Valyria. Eyjan hafði þá verið bækistöð Valyrian Freehold um nokkuð skeið. Þar má finna risastórt kort af Westeros, sem Aegon I og systur/eiginkonur hans, Visenya og Rhaenys skipulögðu innrás sína í Westeros.

Nú er Daenerys að gera slíkt hið sama. Að skipuleggja innrás sína í Westeros. Cersei, er líklega bara snældu snar og Jon Snow er áhyggjufullur, eins og alltaf. Hann hefur svo sem ástæðu til að vera áhyggjufullur, þar sem stiklan endar á því að við fáum að sjá auga Night King. Líklegast.

Night King er einnig að skipuleggja innrás í Westeros og verður það Jon Snow sem mun fyrstur reyna að stöðva hann. Líklegast.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.