

Game of Thrones
Fréttir og skýringar um einn vinsælasta sjónvarpsþátt veraldar, Game of Thrones.

Báðar fylkingar House of the Dragon fá sína stiklu
HBO hefur birt tvær stiklur fyrir aðra þáttaröð hinna vinsælu þátta House of the Dragon, sem frumsýnd verður í júní. Báðar fylkingar í borgarastyrjöldinni í Westeros fá sína stiklu.
Fréttir í tímaröð

Ætla að gera sigurgöngu Aegon hins fyrsta skil
Innan veggja HBO í Bandaríkjunum er unnið að þróun nýrra þátta úr söguheimi Game of Thrones. Þessi nýjasta sería á að fjalla um innrás Aegon Targaryen og systra/eiginkvenna hans í Westeros.

Frægir rithöfundar höfða mál vegna ChatGPT
Hópur þekktra rithöfunda eins og George R.R. Martin, Jodi Picoult og John Grisham hefur höfðað mál gegn fyrirtækinu OpenAI og sakað það um þjófnað á höfundarréttarvörðu efni sem notað var við þróun ChatGPT gervigreindarinnar. Rithöfundarnir segja gervigreindina byggja á kerfisbundnum og umfangsmiklum þjófnað.

Rýnt í stiklu House of the Dragon
HBO birti í gær nýja stiklu fyrir þættina House of the Dragon, sem gerast í söguheimi Game of Thrones. Drekar Targaryen-ættarinnar eru umfangsmiklir í stiklunni en þættirnir fjalla um mjög róstusamt tímabil í Westeros.

Ísland skráð sem tökustaður í flestum þáttum A House of Dragons
Ísland er skráð sem tökustaður í níu af tíu þáttum House of the Dragon-þáttanna sem gerast í söguheimi Game of Thrones. Það er samkvæmt vef IMDB en mikil leynd hvílir yfir tökum þáttanna.

Mjallhvít og dvergarnir sjö endurgerðin er ekki vinsæl hjá Peter Dinklage
Leikaranum Peter Dinklage finnst það taktlaust af Disney að vera að búa til mynd um sjö dverga sem búa í helli og opnaði hann sig um málið. Umræðan átti sér stað í viðtali hjá Marc Maron´s WTF hlaðvarpinu.

Martin bað forstjóra HBO um hundrað þætti af Game of Thrones
George R.R. Martin, rithöfundurinn sem skrifaði Game of Thrones bókina og aðrar bækur í þeim söguheimi sem sjónvarpsþættirnir vinsælu byggja á, hafði áhyggjur af því að gera þyrfti fleiri þáttaraðir til að gera sögunni skil. Alveg eins og við hin!

HBO birtir fyrstu stiklu House of the Dragon
HBO birti í morgun stutta stiklu fyrir þættina House of the Dragon, sem frumsýndir verða á næsta ári.

Yljar sér enn við að hafa pissað upp á jökli á Íslandi
Game of Thrones stjarnan Kit Harrington er sannkallaður Íslandsvinur eftir að hafa eytt dágóðum tíma hér á landi við gerð þáttanna ofurvinsælu. Hann segir að eitt augnablik hér á landi nýtist honum alltaf þegar hann verður pirraður í vinnunni.

Tökur hafnar á House of the Dragon
Tökur eru hafnar á þáttunum House of the Dragon, sem er úr smiðjum HBO og byggja á bókum George RR Martin, A Song of Ice and Fire og öðrum. Það eru sömu bækur og þættirnir vinsælu Game of Thrones byggðu á.

HBO með minnst þrjár nýjar þáttaraðir í vinnslu
HBO vinnur að framleiðslu þriggja nýrra þáttaraða úr söguheimi Game of Thrones þáttanna. Það er til viðbótar við seríuna House of the Dragon, sem fjallar um Targaryen ættina og frumsýna á á næsta ári.

Latabæjarþáttur í 20. sæti yfir bestu þætti sögunnar
Vefsíðan IMDB er í raun gagnabanki yfir leiknar kvikmyndir og sjónvarpsþætti þar sem fjallað eru um kvikmyndirnar og þættina og fær efnið einkunn frá 1-10.

Nikolaj Coster-Waldau mætti á kaffihús með MR-ingum
Stjórn Leikfélags MR fékk sjálfan Nikolaj Coster-Waldau í viðtal til sín á Kaffibrennslunni í gær.

Leikkonan Diana Rigg er látin
Breska leikkonan Diana Rigg, sem meðal annars gerði garðinn frægan fyrir hlutverk sitt í The Avengers og þáttunum Game of Thrones, er látin, 82 ára að aldri.

Hírðist í tjaldi á Íslandi og hnuplaði mat
Áður en leikarinn Rory McCann sló í gegn í þáttunum um Krúnuleikana, bjó hann í tjaldi á Íslandi og stal sér til matar. Hann safnaði bókasafnsskuldum sem hann borgaði til baka mörgum árum síðar.

Lýsir nektarsenunum í Game of Thrones sem hryllilegum
Breska leikkonan Emilia Clarke sem fór með eitt af aðalhlutverkunum í hinum vinsælu sjónvarpsþáttum Game of Thrones segir að henni hafi liðið illa þegar verið var að taka sumar af nektarsenunum í þáttunum.

HBO pantar seríu um Targaryen-ættina
Forsvarsmenn HBO tilkynntu í gærkvöldi að þeir hafi pantað tíu þátta sjónvarpseríu sem fjalla á að hluta til um borgarastyrjöld Targaryen-ættarinnar úr Game of Thrones.

Game of Thrones halaði inn flest verðlaun á Emmy-hátíðinni
Sjónvarpsþættirnir Game of Thrones, Tsjernóbyl og Fleabag voru á meðal sigurvegara á Emmy-hátíðinni sem fram fór í Los Angeles í nótt.

Ný þáttaröð um sigurgöngu Aegon nálgast framleiðslu
HBO er nálægt því að samþykkja gerð prufuþáttar nýrrar þáttaraðar úr söguheimi Game of Thrones.

Trylltust af gleði þegar þau hittu hvort annað
Game of Thrones-stjarnan Sophie Turner og Queer Eye snyrtipinninn Jonathan Van Ness eru miklir aðdáendur hver annars.

Baltasar og Nikolaj Coster-Waldau borðuðu saman á Matarkjallaranum
Danski leikarinn Nikolaj Coster-Waldau hefur undanfarna daga dvalið hér á landi. Íslandsvinurinn Coster-Waldau er einn þekktasti leikari Danmerkur og hefur undanfarin ár gert garðinn frægan í hlutverki riddarans Jaime Lannister í HBO þáttunum Game of Thrones sem sýndir voru á Stöð 2.

Kit Harington hataði drekasenurnar: „Þetta er ekki leiklist“
Breski Game of Thrones leikarinn Kit Harington, sem lék hlutverk Jon Snow í HBO þáttunum Game of Thrones sem sýndir voru á Stöð 2, segir að atriði þar sem persónu Harington flýgur um á dreka hafi farið verulega í taugarnar á honum.

Game of Thrones-stjarna tilnefndi sjálfa sig til Emmy-tilnefningar
Segja má að Gwendoline Christie hafi hreinlega sótt sér eitt stykki Emmy-tilnefningu.

Segir gagnrýni á áttundu þáttaröð Game of Thrones kjánalega
Áttunda og jafnframt síðasta þáttaröð HBO þáttanna Game of Thrones, sem sýndir voru á Stöð 2 fyrr á árinu, var harðlega gagnrýnd af aðdáendum víða sem sökuðu mennina að baki þáttunum um áhugaleysi og skemmdarverk.