Fjórar náðu HM-lágmarki Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 7. apríl 2017 18:11 Hrafnhildur náði lágmarki í 100 metra bringusundi. vísir/getty
Fjórar sundkonur náðu lágmarki fyrir HM í Búdapest í sumar á Íslandsmótinu í sundi í dag. Hrafnhildur Lúthersdóttir vann öruggan sigur í 100 metra bringusundi og náði um leið lágmarki fyrir HM. Hrafnhildur synti á 1:07,44 mínútum. Eygló Ósk Gústafsdóttir átti ekki í neinum vandræðum með að tryggja sér sigur 200 metra baksundi en hún synti á 2:11,20 og var rúmum 13 sekúndum á undan næstu konu. Þessi tími tryggði Eygló þátttökurétt á HM. Ingibjörg Kristín Jónsdóttir og Bryndís Rún Hansen náðu báðar lágmarki í 50 metra skriðsundi. Ingibjörg hafði betur í úrslitasundinu en hún synti á 25,72 sekúndum. Bryndís Rún kom í bakkann á 26,04 sekúndum. Bryndís Rún vann hins vegar sigur í 100 metra flugsundi á tímanum 1:02,68. Aron Örn Stefánsson vann sigur í bæði 50 og 100 metra bringusundi. Hann synti á 23,66 í 50 metra bringusundinu og 1:07,78 í 100 metrunum. Kristinn Þórarinsson varð hlutskarpastur í 200 metra baksundi en hann synti á 2:07,93. Ágúst Júlíusson kom fyrstur í bakkann í 100 metra flugsundi á 55,96. Sveit SH vann sigur í 4x200 metra skriðsundi kvenna á tímanum 8:30,84. Sveitina skipuðu Hrafnhildur Lúthersdóttir, María Fanney Kristjánsdóttir, Ingibjörg Kristín Jónsdóttir og Bára Kristín Björgvinsdóttir. Sveit ÍRB varð hlutskörpust í 4x200 metra skriðsundi karla á tímanum 8:02,23. Þröstur Bjarnason, Kristófer Sigurðsson, Baldvin Sigmarsson og Davíð Hildiberg Aðalsteinsson skipuðu sveitina.
Sund Mest lesið Logið upp á Einar Örn í dönskum miðlum Handbolti Myndaveisla: Gleðin við völd innan vallar sem utan Handbolti Óli Stef ósáttur við Guðmund: „Ekki fengið neina kennslu, þroska og pepp“ Handbolti Einkunnir Strákanna okkar á móti Kúbu: Aron gaf tóninn með glans Handbolti Er Jokic bara að djóka? Körfubolti Antony á leið til Betis Enski boltinn „Ég eiginlega barði þetta í gegn“ Handbolti „Ekki minn stíll að vera í feluleik með Aron“ Handbolti Danir með fullt hús stiga og 55 mörk í plús Handbolti Skýrsla Henrys: Kúbverjarnir reyktir í Zagreb Handbolti Fleiri fréttir Þykir vænst um Skallagrím: „Ástæðan fyrir því að ég er hérna“ HM í dag: Næturvakt, kúkur á bíl og ömurlegur bílstjóri Í beinni: Fiorentina - Torino | Komast Albert og félagar á sigurbraut? Segir Liverpool besta lið heims Frá Barcelona til liðs í dönsku B-deildinni Antony á leið til Betis Fjármagnaði leikmannakaup Wimbledon með tölvuleikjaspilun Er Jokic bara að djóka? Myndaveisla: Gleðin við völd innan vallar sem utan Dagskráin í dag: Bandarískar deildir fyrirferðamiklar Skýrsla Henrys: Kúbverjarnir reyktir í Zagreb Brynjólfur Willumsson á skotskónum í tapleik Groningegn Danir með fullt hús stiga og 55 mörk í plús „Ég eiginlega barði þetta í gegn“ Einkunnir Strákanna okkar á móti Kúbu: Aron gaf tóninn með glans Sex í röð hjá Napólí „Ekki minn stíll að vera í feluleik með Aron“ „Ætluðum bara að vinna eins stórt og við gátum“ Tölfræðin á móti Kúbu: Aron kveikti á seinni bylgjunni Umfjöllun: Ísland - Kúba 40-19 | Allt klappað og klárt fyrir úrslitaleik Elvar næst stigahæstur í háspennu sigri Juventus lagði AC Milan Grindavík marði Stjörnuna í lokin „Við vorum komnar með blóðbragð í munninn“ Slóvenar taka forystuna í riðlinum okkar „Erum með samfélag sem trúir á okkur“ Njarðvíkingar kláruðu Stólana í lokin Aron Pálmarsson í hóp í kvöld Ollie Watkins gerði Arsenal skráveifu Sjöunda tap Leicester í röð Sjá meira