Pútín fordæmir árás Bandaríkjanna á Sýrland Hulda Hólmkelsdóttir skrifar 7. apríl 2017 07:32 Bandaríkjaher skaut í gærkvöldi 59 Tomahawk eldflaugum að herflugvelli í Sýrlandi. Vísir/Getty
Vladímír Pútín forseti Rússlands hefur fordæmt árás Bandaríkjanna á Sýrland. Bandaríkjaher skaut í gærkvöldi 59 Tomahawk eldflaugum að herflugvelli í Sýrlandi. Pútín segir árásina stríða gegn alþjóðalögum og að hún hafi skaðað samband Bandaríkjanna og Rússlands. Breska ríkisstjórnin styður árásina. Dimitry Peskov, talsmaður rússnesku ríkisstjórnarinnar, sagði Pútín, sem er dyggur stuðningsmaður Bashar al-Assad forseta Sýrlands, líta á árásina sem tilefnislausa árás gegn lýðræðissríki til að beina sjónum heimsins frá dauðsfalli óbreyttra borgara í Írak.Þá sagði hann einnig að rússnesk yfirvöld stæðu ekki í þeirri trú að efnavopn væri að finna í Sýrlandi og að slíkar árásir hafi skaðleg áhrif á baráttuna gegn hryðjuverkum.Bretar lýsa yfir stuðningi Yfirvöld í Bretlandi hafa lýst yfir stuðningi við árásina. Í yfirlýsingu frá bresku ríkisstjórninni sagði að árásin væri „viðeigandi viðbragð við ósiðmenntaðri efnavopnaárás sýrlenskra yfirvalda.“ Bandaríkin gerðu fyrst árásir í Sýrlandi árið 2014 en þær hafa allar beinst gegn Íslamska ríkinu. Um er að ræða mikinn viðsnúning fyrir ríkisstjórn Donald Trump. Þegar átökin hófust í Sýrlandi lýsti Trump því yfir að hann væri verulega mótfallinn því að Bandaríkin skiptu sér af málum í Sýrlandi. Rússland og Íran hafa staðið við bakið á Assad.
Sýrland Tengdar fréttir Gerðu árás á Sýrland Bandaríski herinn skaut í kvöld um 50 Tomahawk eldflaugum að herflugvelli í Sýrlandi. 7. apríl 2017 01:46 Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fimmtíu milljarðarnir kveiktu í Pallborðinu Innlent Hin hliðin ljúgi að landsmönnum Innlent Hótelgestir þeirra eru fjórfætlingar Innlent Íbúar Bolungarvíkur urðu varir við borgarísjaka Innlent Ráðuneytið birtir útreikningana Innlent Verktakar óttast stýrivaxtahækkun: „Þá springur allt í loft upp aftur“ Innlent Fleiri fréttir Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Sjá meira
Gerðu árás á Sýrland Bandaríski herinn skaut í kvöld um 50 Tomahawk eldflaugum að herflugvelli í Sýrlandi. 7. apríl 2017 01:46