Meirihlutinn í OR vill greiða út 750 milljóna króna arð Jakob Bjarnar skrifar 3. apríl 2017 11:28 Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins telja Dag leggja ofuráherslu á arðgreiðslu frá OR, þó það kosti brot á eigin reglum, til að fegra megi ársreikning sem leggja á fram á næstunni.
Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í stjórn OR, þau Kjartan Magnússon og Áslaug Friðriksdóttir, greiddu atkvæði gegn tillögu stjórnar um arðgreiðslu sem nemur 750 milljónum króna. Þau telja liggja fyrir að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri leggi hart að þeim í meirihlutanum með arðgreiðsluna, svo hart að stjórnin sé að brjóta eigin lög um arðgreiðsluskilyrði. Aðalfundurinn verður haldinn í dag klukkan 12:30, í Iðnó og verður Vísir með beina útsendingu frá honum. Víst er að tekist verður á en í stjórn Orkuveitu Reykjavíkur sitja þau: Brynhildur Davíðsdóttir formaður og Gylfi Magnússon er varaformaður. Aðrir fulltrúar eru Sigríður Rut Júlíusdóttir, Kjartan Magnússon, Áslaug Friðriksdóttir og Valdís Eyjólfsdóttir. Fulltrúar í sveitarstjórnum eigenda OR, stjórnarmenn sem og fulltrúar fjölmiðla hafa seturétt en sveitarstjórar eigendasveitarfélaganna þriggja fara með atkvæðisrétt á fundinum.Núverandi stjórn OR en formaður er Brynhildur Davíðsdóttir.Tillagan um arðgreiðslur er svohljóðandi: „Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur (OR) samþykkir að gera tillögu til aðalfundar um arðgreiðslu að fjárhæð 750 milljónir króna. Tillagan er háð því að öll arðgreiðsluskilyrði séu uppfyllt fyrir og eftir arðgreiðslu.“Brjóta eigin reglurÁslaug og Kjartan telja þetta óeðlilegt og hafa lagt fram bókun þar sem þau vekja athygli á því að eigendur OR hafi sett arðgreiðsluskilyrði fyrir félagið þar sem meðal annars kemur fram að veltufjárhlutfall skuli vera yfir 1,0. „Samkvæmt fyrirliggjandi ársreikningi fyrirtækisins er veltufjárhlutfallið undir þessum mörkum eða 0,8,“ segir meðal annars í bókun þeirra. „Það er því mjög óeðlilegt að stjórn Orkuveitunnar samþykki nú tillögu til aðalfundar um arðgreiðslu vegna ársins 2016 þegar mikilvægu arðgreiðsluskilyrði, sem eigendur félagsins hafa sett því, hefur ekki verið fullnægt. Tillagan hefur verið unnin í miklum flýti eins og meðferð málsins ber með sér og eru slík vinnubrögð óviðunandi í ljósi mikilvægis þess.“Hvers vegna þetta óðagot nú?Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins velta því fyrir sér hvers vegna afsláttur sé nú gefinn af viðmiðum sem stjórnin setti sér sjálf, þó vissulega hafi þau viðmið verið þröng? „Þetta sama fólk skilgreindi þessi skilyrði sem það nú vill brjóta,“ segir Áslaug í samtali við Vísi.Áslaug veltir því fyrir hvort tillagan, sem einkennist af óðagoti sé fram komin til að fegra ársreikning borgarinnar?kristinn magnússonHún veltir því fyrir sér að hvaða leyti þetta tengist því að fegra eigi útkomu borgarsjóðs? Af hverju þessi flýtir og óðagot sem stingur í stúf við þá yfirvegun sem einkennt hefur Planið sem nú rétt hefur runnið sitt skeið á enda. Þá hafa borgarfulltrúarnir áhyggjur af því að tillagan leiði til aukinnar lántöku og svo þess hvort ekki sé rétt að skoða frekar hvernig létta megi álögum af heimilum sem tóku á sig hækkanir á orkuverði, sem er hluti af háu húsnæðisverði, í hruninu en fá svo aldrei að njóta.Vildu „í gær“ lækka skuldir ORÍ þessu samhengi benda þau á afgreiðslu tillögu í borgarráði 29. september síðastliðnum sem gekk út á einmitt það. Sú tillaga var felld með atkvæðum fulltrúa Samfylkingarinnar, Bjartrar framtíðar, Vinstri grænna og Pírata sem lögðu þá fram svohljóðandi bókun: „Arðsemi Orkuveitu Reykjavíkur er ekki í samræmi við áhættu í rekstri fyrirtækisins. Ótímabært er að taka til skoðunar gjaldskrárlækkanir fyrr en skilgreind hafa verið arðsemismarkmið fyrir starfsþætti OR og tryggt hefur verið að arðsemin samræmist markmiðum eins og gert er ráð fyrir í eigendastefnu. Þá þarf áfram að stefna að lækkun skulda og minnkun fjárhagslegrar áhættu næstu árin til að OR nái þeim fjárhagslega styrk sem gert er ráð fyrir í langtímamarkmiðum fyrirtækisins.“
Tengdar fréttir Meirihlutinn á móti lækkun gjaldskrár OR Borgarfulltrúi vill að skoðað verði hvort Orkuveitan geti lækkað gjaldskrár. Gert er ráð fyrir að fyrirtækið greiði út arð eftir tvö ár. Meirihlutinn er á móti. 3. október 2016 07:00 „Plan“ Orkuveitunnar gekk upp Aðgerðaráætlun Orkuveitu Reykjavíkur frá 2011 skilaði um tíu milljarða betri sjóðstöðu en reiknað var með. 7. mars 2017 15:23 Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Sjá meira
Meirihlutinn á móti lækkun gjaldskrár OR Borgarfulltrúi vill að skoðað verði hvort Orkuveitan geti lækkað gjaldskrár. Gert er ráð fyrir að fyrirtækið greiði út arð eftir tvö ár. Meirihlutinn er á móti. 3. október 2016 07:00
„Plan“ Orkuveitunnar gekk upp Aðgerðaráætlun Orkuveitu Reykjavíkur frá 2011 skilaði um tíu milljarða betri sjóðstöðu en reiknað var með. 7. mars 2017 15:23