Kristinn lagði upp mark í sigri á nýliðunum | Myndband Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 2. apríl 2017 17:20 Kristinn byrjar tímabilið vel. mynd/columbus crew
Kristinn Steindórsson lagði upp fyrsta mark GIF Sundsvall í 3-1 sigri á Athletic Eskilstuna á heimavelli í 1. umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Kristinn var í byrjunarliði Sundsvall líkt og nafni hans Freyr Sigurðsson sem lék sinn fyrsta leik fyrir félagið. Þetta var fyrsti leikur Eskilstuna í efstu deild og þeir komust yfir á 25. mínútu þegar fyrirgjöf Sasa Matic fór í stöngina og inn. Aðeins sex mínútum síðar átti Kristinn frábæra fyrirgjöf á kollinn á Peter Wilson sem skallaði í markið. Lars Krogh Gerson kom Sundsvall yfir fjórum mínútum fyrir hálfleik og Marcus Danielsson gulltryggði svo sigurinn þegar hann skoraði þriðja markið á 51. mínútu. Fjórir Íslendingar komu við sögu þegar Norrköping vann 2-1 sigur á Hammarby. Jón Guðni Fjóluson stóð vaktina í vörn Norrköping sem var 2-0 yfir í hálfleik. Alfons Sampsted sat allan tímann á bekknum hjá Norrköping. Ögmundur Kristinsson stóð á milli stanganna hjá Hammarby og þeir Birkir Már Sævarsson og Arnór Smárason spiluðu einnig allan leikinn. Þá var Haukur Heiðar Hauksson ekki í leikmannahópi AIK sem gerði markalaust jafntefli við Häcken.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið „Besti íþróttamaður Íslands gleymdist“ Sport Sautján ára stelpa þénar hundruð milljóna í súrknattleik Sport Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Fótbolti Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslandsmeistarar og stórleikur í NBA Sport Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Enski boltinn Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Enski boltinn Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Fótbolti Konurnar aftur fleiri og sex fædd eftir 2000: Topp tíu listinn í ár Sport Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Enski boltinn Fleiri fréttir Segir slæmt gengi City ekki Haaland að kenna Liverpool sjö sinnum áður verið toppliðið um jólin Alex Iwobi bregður sér í jólasveinabúning og opnar ókeypis búð Ver jólunum í faðmi fjölskyldunnar og vonast eftir lóðasetti Músaskítur í leikhúsi draumanna Fjármálastjórinn hágrét þegar hann gekk frá uppsögninni Klopp sýndi Red Bull áhuga þegar hann var enn þjálfari Liverpool Manchester United skoðar Malasíuferð strax eftir tímabilið Tækifæri að opnast fyrir Benóný hjá Stockport Inter þremur stigum frá toppnum og með leik til góða Eftirmaður Amorim strax á útleið Svekkjandi tap hjá Alberti og félögum eftir að hafa komist yfir Landaði forstjórastarfi hjá Forest eftir að Rómverjar ruddu henni burt Nesta látinn fara eftir aðeins einn sigur í sautján leikjum Fasistakveðjur til ungs Mussolini vekja athygli Dauðþreyttur á sömu spurningum: „Fólk heldur að það sé hægt að ýta á takka“ Algjört áfall fyrir Arsenal og Saka „Ég hætti í landsliðinu þegar ég hætti í fótbolta“ Héldu í hefðina og köstuðu þúsundum bangsa inn á völlinn Entist ekki lengi í fyrsta þjálfarastarfinu „Allt er svo erfitt“ Látnir æfa á jóladag Mætir á leik í fyrsta sinn eftir að hjartað stoppaði Logi frá FH til Króatíu Rashford á lausu yfir jólin Missti niður um sig brækurnar og gaf ódýrt mark „Við vorum taugaóstyrkir“ Salah sló þrjú met í dag Semur við félagið sem bæði mamma og pabbi spiluðu fyrir Everton hjálpaði sér og nágrönnunum í Liverpool Sjá meira