Bjór í hádeginu í boði Smáís Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 11. apríl 2017 13:00 Snæbjörn Steingrímsson fyrir aðalmeðferð málsins í gær. vísir/eyþór
Snæbjörn Steingrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri Smáíss, segir ekkert óeðlilegt við notkun sína á fjármunum félagsins en hann er sakaður um að hafa nýtt sér þá til að kaupa vörur í heimildarleysi til eigin nota. Snæbjörn sætir ákæru fyrir fjárdrátt og umboðssvik en hann er meðal annars sakaður um að hafa notað kreditkort félagsins til eigin nota í hátt í 300 skipti á sjö ára tímabili. Aðalmeðferð málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær og í síðustu viku. Snæbjörn bar því við að öll þau tæki og tól sem hann keypti fyrir peninga félagsins hafi verið ætluð fyrirtækinu sjálfu, en hann keypti ýmis raftæki, húsgögn og fleira.Missti bílprófið og tók leigubíl þegar hann var seinn Kreditkortið notaði Snæbjörn einnig í leigubílaþjónustu og á ýmsum veitingastöðum í miðborginni, til dæmis á 101 hóteli, Nauthóli og Jómfrúnni, að því er segir í ákærunni. Snæbjörn sagði við aðalmeðferðina að hann hafi í störfum sínum sem framkvæmdastjóri haft leyfi til „tengslamyndana“. Þannig hafi hann boðið samstarfsaðilum út að borða út á fé félagsins, en að þeir hafi gert hið sama á móti. Þá sagðist hann hafa verið próflaus á tímabili og tekið leigubíl þegar hann var seinn fyrir, en hann hafði bifreið félagsins til afnota. Oft á tíðum hafi verið of tímafrekt að ganga, taka strætó eða fá skutl, líkt og hann orðaði það. Stjórnarmeðlimir sögðust ekki hafa verið upplýstir um prófleysið.Fjárhagsáætlunin lifandi plagg Fjárhagsáætlun Smáíss var títtnefnd við aðalmeðferð málsins. Snæbjörn sagði að vissulega hafi slík áætlun legið fyrir en að um hafi verið að ræða „lifandi plagg“ og því ekki hægt að fylgja henni í hvívetna. Hún hafi breyst ört eftir verkefnum félagsins. Þessu voru stjórnarmeðlimir hins vegar ekki sammála því að allar stærri ákvarðanir hafi átt að bera undir stjórnina. „Ég get ekki tekið undir það [að þetta hafi verið lifandi plagg] því í grófum dráttum var þetta allt saman rangt. Ef það voru frávik á þessari áætlun, stórkostleg frávik sem kölluðu á meiri peninga til þess að halda meira jafnvægi á rekstrinum þá þurfti til þess stjórnarfundi [...] Þeir reikningar sem lagðir voru fyrir voru rangir,“ sagði Björn Sigurðsson, stjórnarformaður félagsins og fyrrverandi forstjóri Senu, sem bar vitni í málinu. Stjórn Smáís kærði Snæbjörn til embættis sérstaks saksóknara eftir að fjárreiður samtakanna voru skoðaðar við starfslok Snæbjörns. Björn sagði ýmsar grunsemdir hafa verið uppi um að ekki væri allt með felldu. „Það sem kom þessu máli á skrið var að það var farið að grennslast fyrir um bifreiðina sem framkvæmdastjórinn hafði til afnota, en það var lítið um svör. Hún hafði orðið fyrir tjóni og það var mjög skrítin saga á bak við það. Það varð til þess að menn byrjuðu að skoða þetta og þá vöknuðu ýmsar grunsemdir.“ Engar athugasemdir gerðar því ársreikningarnir virtust í lagi Björn sagði stjórnina ekki hafa gert athugasemdir við fjárútlát félagsins enda hafi hún staðið í þeirri trú að unnið væri eftir samþykktri fjárhagsáætlun. „Það voru ekki settar neinar reglur í því sambandi. En stjórnin sá kannski ekki ástæðu til þess að setja út á neitt slíkt enda sá stjórnin ársreikninga sem voru innan þeirra ramma sem samþykktir voru og með litlum skekkjumörkum. Þess vegna var stjórnin í þeirri trú að verið væri að fara eftir þeirri línu sem sett var.“Óeðlilegt að hafa vín við hönd á miðjum degi Aðspurður sagði Björn að Snæbjörn hafi haft leyfi til að greiða fyrir mat með samstarfsaðilum af og til. Hins vegar hafi engin heimild verið fyrir áfengiskaupunum, „Ég set spurningarmerki við þessi áfengiskaup á miðjum dögum og finnst mjög skrítið að slíkir reikningar séu hér á borðum [...] Það er ekkert eðlilegt að það sé haft vín við hönd í hádeginu á þriðjudegi,“ sagði hann. Jafnframt sé óeðlilegt að Snæbjörn hafi nýtt sér leigubíla á sama tíma og fyrirtækið greiði fyrir hann bíl. Þá sagði Björn að Snæbjörn hafi unnið mikið tjón á félaginu. „Það er náttúrulega búið að gera félagið upp þannig að ég myndi segja það. Þessar úttektir ásamt því sem hann leyndi stjórninni, og því sem hún hafði ekki vitneskju um, ógreidd opinber gjöld og annað. [...] Stjórnin hafði ekki trú um annað en að það væri jafnvægi í rekstri félagsins.“ Snæbirni er gefið að sök að hafa notað kreditkort félagsins til eigin nota í alls 275 skipti fyrir um 6,8 milljónir króna, og að hafa dregið sér tæplega 1,3 milljónir króna í gegnum bankareikning félagsins. Héraðssaksóknari fer fram á að Snæbjörn verði dæmdur til refsingar og greiðslu alls sakarkostnaðar og þá fer þrotabú SMÁÍSS fram á tæplega fimm milljónir króna í skaðabætur. SMÁÍS, samtök myndrétthafa á Íslandi, var tekið til gjaldþrotaskipta árið 2014. Stjórn samtakanna sagði ástæðuna ítrekuð brot Snæbjörns, en hann gegndi starfinu frá árinu 2007. Samtökin voru stofnuð árið 1992 til að gæta hagsmuna rétthafa myndefnis á Íslandi auk þess sem þau áttu að hafa ýmis hagsmunamál rétthafa á sínum snærum.
Tengdar fréttir Snæbjörn neitaði sök Fyrrverandi framkvæmdastjóri SMÁÍS neitaði sök í máli héraðssaksóknara á hendur honum í morgun. 21. desember 2016 11:00 Snæbjörn sakaður um að hafa greitt fyrir leigubíla, mat og drykki með peningum SMÁÍS Snæbjörn Steingrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri SMÁÍS, hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir fjárdrátt og umboðssvik. 19. desember 2016 13:37 Mest lesið Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Innlent Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Innlent Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Innlent „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Innlent Hélt um fætur eiginmannsins meðan hann sogaðist úr glugga í háloftunum Erlent Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Innlent „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Innlent Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana Innlent Trump boðar gjaldtöku á Hormússundi Erlent Grobba sig af stolnum trjám Innlent Fleiri fréttir Alvarleg líkamsárás á borði miðlægrar rannsóknardeildar „Búnir að þróa með sér spilafíkn áður en þeir byrja að veðja“ Ríkið borgar brúsann vegna langdreginnar rannsóknar á árás við skólalóð Alvarlegar líkamsárásir í Reykjavík Svona berðu kennsl á fyrstu einkenni heilabilunar Styrkt verkefni í fyrra sem spari þjóðinni 93 milljarða króna Lítil bjartsýni á úrslitastundu Ekki eigi að leyfa frekjukallinum að vaða uppi Loks fengið varanlegt heimili eftir yfir hundrað ár á Íslandi Grobba sig af stolnum trjám „Ég hélt að það erfiðasta yrði að lifa af nauðgunina sjálfa“ Óskiljanleg áfengissala, óvissa fyrir úrslitastund og úrkoman endalausa Dæmdur fyrir heimilisofbeldi en sagðist sjálfur hafa verið eins og gísl Telja Sævar hafa verið tengilið Kastriots við skipverjana „Stundum koma upp atvik“ Langflestir umsækjendur frá Úkraínu „Ef þú vilt græða þá ferðu í að selja loftkælingu í Evrópu“ „Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“ Byrjaði skyndilega að taka konuna hálstaki og hélt í 40 sekúndur Allt lið kallað út vegna elds í vélarrúmi „Það varð uppi fótur og fit“ Endurreisn mýranna megi ekki bíða lengur Olíuverð, trjáþjófnaður og áhrifagjörn ungmenni Hafnarfjörður hafði betur gegn Jóni Rúnari „Elliðaárnar eru bakkafullar af göngulaxi“ Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Sjá meira
Snæbjörn neitaði sök Fyrrverandi framkvæmdastjóri SMÁÍS neitaði sök í máli héraðssaksóknara á hendur honum í morgun. 21. desember 2016 11:00
Snæbjörn sakaður um að hafa greitt fyrir leigubíla, mat og drykki með peningum SMÁÍS Snæbjörn Steingrímsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri SMÁÍS, hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir fjárdrátt og umboðssvik. 19. desember 2016 13:37