Gögn sýna virkni leynifélagsins í „Lundafléttunni“ Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 16. maí 2017 18:39 Valgerður Sverrisdóttir, þáverandi viðskiptaráðherra, og Peter Gatti, fulltrúi Hauck & Aufhäuser, handsala kaupin á Búnaðarbankanum árið 2003. fréttablaðið/gva
Svo virðist sem að Dekhill Advisors, leynifélag sem fékk um þrjá milljarða króna greidda inn á eigin reikninga, í tengslum við kaup S-hópsins á hlutabréfum í Búnaðarbankanum sé virkt félag. Upplýsingar um raunverulega eigendur félagsins ættu að vera á skrá hjá svissneskum banka. Þetta sýna gögn sem fréttastofa RÚV og Kjarninn hafa undir höndum og fjallað er um á RUV.is og á Kjarnanum. Í skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis vegna sölunnar á Búnaðarbanka, sem skilað var í mars, kom fram að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser var aldrei í reynd fjárfestir í Búnaðarbankanum þegar 45,8 prósent hlutur ríkisins í honum var seldur í janúar 2003, ólíkt því sem haldið var fram allt frá upphafi. Þar kom einnig fram að raunverulegur eigandi hlutarins sem bankinn var sagður eiga hafi verið aflandsfélagið Welling & Partners, skráð á Tortóla á Bresku Jómfrúaeyjum. Hlutabréfin sem þýski bankinn keypti að nafninu til voru síðar seld með milljarða króna hagnaði. Á árinu 2006 var þessi hagnaður greiddur út, eða um 100 milljónir dollara. Fléttan fékk nafnið „Puffin“ og hefur verið kölluð „Lundafléttan“.Finnur Vilhjálmsson og Kjartan Björgvinsson sem rannsökuðu kaupin á Búnaðarbankanum hófu rannsókn sína í júlí 2016.Vísir/Anton Brink57,5 milljónir dollara voru greiddar af bankareikningi Welling & Partners til aflandsfélagsins Marine Choice Limited, félags í eigu Ólafs Ólafssonar. Um svipað leyti voru 46,5 milljónir Bandaríkjadala greiddar af bankareikningi Welling & Partners til aflandsfélagsins Dekhill Advisors Limited sem einnig var skráð á Tortóla. Ekki liggja fyrir óyggjandi upplýsingar um raunverulega eigendur Dekhill Advisors.Félagið virkt eftir hrun Í gögnunum sem Kjarninn og fréttastofa RÚV hafa undir höndunum kemur fram að félagið virðist enn vera til. Þar sé að finna skjal sem sýni virkni félagsins þann 8. desember 2009. Gögnin sýna að svissneski bankinn Julius Bäer hafi tekið tekið veð í öllum eignum Dekhill Advisors en ekki kemur fram hvers vegna. Þá sé í gögnunum einnig að finna skráningarskírteini fyrir Dekhill Advisors úr fyrirtækjaskrá á Bresku-Jómfrúaeyjum. Það skírteini er frá haustinu 2016.Í frétt RÚV segir að í ljósi þess að félagið hafi verið í viðskiptum við Julius Bäer-bankann vegna alþjóðlegra reglna um aðgerðir gegn peningaþvætti og fjármögnun hryðjuverka sé raunverulegur eigandi félagsins á skrá hjá bankanum. Rannsóknarnefndinni tókst ekki að sýna fram á það með óyggjandi hætti hver væri raunverulegur eigandi félagsins en Kjartan Bjarni Björgvinsson, formaður rannsóknarnefndarinnar, að það væru aðilar á Íslandi sem hefðu vitneskju um það. Sagði hann að stærsta spurningin sem eftir stæði eftir rannsóknarvinnu nefndarinnar væri hverjir væru raunverulegir eigendur félagsins.„Í þessari skýrslu sem við skiluðum í dag stendur eftir ein stór spurning. Hún er sú hverjir áttu aflandsfélagið Dekhill Advisors Ltd sem fær til sín rúmlega 46 milljón bandaríkjadala af þessum fjárhagslega ávinningi af viðskiptunum?,“ sagði Kjartan í viðtali við kvöldfréttir Stöðvar 2. Ólafur Ólafsson, sem borinn var þungur sökum í skýrslunni, kemur fyrir Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis á morgun. Þar mun hann útskýra mál sitt en hann neitar því staðfastlega að hafa staðið í blekkingum við íslenska ríkið við kaupin á bankanum árið 2003.
Salan á Búnaðarbankanum Tengdar fréttir Stjórnvöld skipulega blekkt í aðdraganda og kjölfar sölunnar á Búnaðarbankanum Rannsóknarnefnd Alþingis hefur sannreynt að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser var aldrei í reynd fjárfestir í Búnaðarbankanum þegar 45,8 prósent hlutur ríkisins í honum var seldur í janúar 2003, ólíkt því sem haldið var fram allt frá upphafi. 29. mars 2017 10:21 Hverjir högnuðust með Ólafi? Bakkavararbræður keyptu sig inn í Kaupþing tveimur vikum áður en bankinn fjármagnaði kaup Welling & Partner í Búnaðarbankanum. Nöfn þeirra koma fyrir í samningsdrögum sem rannsóknarnefndin skoðaði. 31. mars 2017 06:00 Gögnin sýna blekkinguna svart á hvítu Kjartan Björgvinsson og Finnur Vilhjálmsson segja flest gögn um fléttuna á bakvið kaupin á Búnaðarbanka þegar hafa legið fyrir hjá helstu eftirlitsstofnunum ríkisins. Aðeins hafi átt eftir að draga þau saman og rekja punktana, frá afland 30. mars 2017 06:00 Líkur á að um helmingur hagnaðarins hafi runnið til aðila tengdra Kaupþingi Staðfest er að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser var leppur fyrir kaup á hlut í Búnaðarbankanum árið 2003. Ólafur Ólafsson athafnamaður stýrði verkefninu, en aðrir leiðtogar í S-hópnum virðast ekki hafa vitað um fléttuna. 30. mars 2017 06:00 Viðtalið við Kjartan og Finn í heild: „Ein risastór spurning sem eftir stendur“ Er ekki eðlilegt að á þessu stigi, þegar allt þetta hefur verið opinberað í dag, að þessir aðilar stígi einfaldlega fram og greini frá öllu saman? 29. mars 2017 17:47 Mest lesið Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Viðskipti innlent Meira um atvinnuleysi: „Tækifærin eru líka mörg á landsbyggðinni“ Atvinnulíf Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Viðskipti innlent Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Viðskipti innlent Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Viðskipti innlent Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Viðskipti innlent Krónan frystir verð til áramóta Neytendur Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Viðskipti innlent Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Viðskipti innlent Hægst á verðhækkun á matvöru Neytendur Fleiri fréttir Vill að ríkissáttasemjari fái auknar valdheimildir í kjaradeilu Selja fyrir 400 milljónir í Síldarvinnslunni Setja upp fjörutíu smáhýsi í Þjórsárdal Sextán starfsmönnum sagt upp á Siglufirði Vilja að 23 lóðir verði seldar undan Vatnsendaerfingja Launahækkanir gætu orðið upptaktur að harðri lendingu Tíu milljarðarnir sem ráðherra segir hafa farið til bílaleiga Sonja ráðin viðskiptastjóri hjá OK Atvinnuleysi jókst á ný í ágúst Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Skýr merki um kólnandi vinnumarkað og hægari umsvif Breytingar í stjórn SVÞ og Örn ráðinn verkefna- og tengslastjóri Bein útsending: Manneskjan í miðju umbreytinga „Er tilgangurinn sérhagsmunir Viðreisnar?“ Fá rúman hálfan milljarð í vasann við söluna Horfur á húsnæðismarkaði versna Íslenskir skattgreiðendur niðurgreiði losun erlendra ferðamanna Bein útsending: Kynna niðurstöður septembertalningar HMS Ráðin fagstjóri ferðaþjónustu hjá Íslandsstofu Verkfallið skaði orðspor Íslands Ágúst til ADVEL Hvar fæ ég bestu vextina til skamms tíma? Kristinn Örn tekur við Teya á Íslandi Nauðasamningur Rammagerðarinnar samþykktur: Bjóða 25 aura á krónuna Þreifingar um lausn en framhaldið óákveðið Bændur æfir vegna pitsaostsins Breytt fyrirkomulag og samskiptastjórinn kveður Jóhanna tekur við sem forstjóri Hafi ekki aðhafst nóg vegna bílastæðagjalda Vinkonur á tímamótum eftir tíu ár í verslunarrekstri Sjá meira
Stjórnvöld skipulega blekkt í aðdraganda og kjölfar sölunnar á Búnaðarbankanum Rannsóknarnefnd Alþingis hefur sannreynt að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser var aldrei í reynd fjárfestir í Búnaðarbankanum þegar 45,8 prósent hlutur ríkisins í honum var seldur í janúar 2003, ólíkt því sem haldið var fram allt frá upphafi. 29. mars 2017 10:21
Hverjir högnuðust með Ólafi? Bakkavararbræður keyptu sig inn í Kaupþing tveimur vikum áður en bankinn fjármagnaði kaup Welling & Partner í Búnaðarbankanum. Nöfn þeirra koma fyrir í samningsdrögum sem rannsóknarnefndin skoðaði. 31. mars 2017 06:00
Gögnin sýna blekkinguna svart á hvítu Kjartan Björgvinsson og Finnur Vilhjálmsson segja flest gögn um fléttuna á bakvið kaupin á Búnaðarbanka þegar hafa legið fyrir hjá helstu eftirlitsstofnunum ríkisins. Aðeins hafi átt eftir að draga þau saman og rekja punktana, frá afland 30. mars 2017 06:00
Líkur á að um helmingur hagnaðarins hafi runnið til aðila tengdra Kaupþingi Staðfest er að þýski bankinn Hauck & Aufhäuser var leppur fyrir kaup á hlut í Búnaðarbankanum árið 2003. Ólafur Ólafsson athafnamaður stýrði verkefninu, en aðrir leiðtogar í S-hópnum virðast ekki hafa vitað um fléttuna. 30. mars 2017 06:00
Viðtalið við Kjartan og Finn í heild: „Ein risastór spurning sem eftir stendur“ Er ekki eðlilegt að á þessu stigi, þegar allt þetta hefur verið opinberað í dag, að þessir aðilar stígi einfaldlega fram og greini frá öllu saman? 29. mars 2017 17:47