Góðri hrinu Álasunds lokið en Norrköping skaut sér í annað sætið Tómas Þór Þórðarson skrifar 12. maí 2017 18:59 Guðmundur Þórarinsson var í fyrsta sinn í byrjunarliði Norrköping. vísir/getty
IFK Norrköping vann 2-1 sigur á nýliðum Ekilstuna í fyrsta leik áttundu umferðar sænsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í kvöld. Liðið hefur nú ekki tapað í fimm leikjum í röð; unnið þrjá og gert tvö jafntefli. Gestirnir í Norrköping komust í 2-0 með mörkum Niclas Eliasson og Kalle Holmberg í fyrri hálfleik áður en nýliðarnir minnkuðu muninn á 57. mínútu. Eskilstuna á enn eftir að vinna leik en liðið er að spila í úrvalsdeildinni í fyrsta sinn í sögunni. Jón Guðni Fjóluson spilaði allan leikinn fyrir Norrköping en Guðmundur Þórarinsson var tekinn af velli á 74. mínútu. Þetta var hans fyrsti leikur í byrjunarliði Norrköping. Ungu Íslendingarnir Alfons Sampsted og Arnór Sigurðsson voru allan tímann á bekknum. Með sigrinum skaut Norrköping sér upp í annað sætii deildarinnar þar sem það situr með fjórtán stig, þremur stigum á eftir toppliði Malmö. Í Noregi tapaði Íslendingaliðið Álasund, 1-0, á heimavelli á móti Vålerenga. Herman Stengel skoraði eina mark leiksins á 39. mínútu. Daníel Leó Grétarsson og Adam Örn Arnarson voru báðir í byrjunarliði Álasunds en Grindvíkingurinn Daníel Leó fór meiddur af velli á 34. mínútu. Fyrir leikinn í kvöld var Álasund ekki búið að tapa í fimm leikjum í röð en það er í áttunda sæti með ellefu stig eftir átta leiki.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Hver gæti tekið við af Carrick? Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira