Keflvíkingar halda öllum sínum íslensku leikmönnum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. maí 2017 13:13 Magnús Már Traustason í leik á móti Íslandsmeisturum KR. Vísir/Ernir
Karlalið Keflavíkur í körfubolta átti endurkomu í hóp bestu liða landsins á nýloknu tímabili í Domino´s deildinni og nú er ljóst að Keflavíkurliðið tekur ekki miklum breytingum frá því í fyrra. Magnús Már Traustason hefur nefnilega framlengt samning sínum við Keflavík og verður hann áfram í herbúðum liðsins næstu tvö árin en þetta kemur fram í frétt á heimasíðu félagsins. Í fréttinni á heimasíðu Keflavíkur er um leið staðfest að allir íslenskir leikmenn Keflavíkurliðsins frá síðasta tímabili verða áfram með liðinu næsta vetur. Þetta eru góðar fréttir fyrir Keflvíkinga sem ættu því að geta byggt ofan á spilamennsku sína í vetur. Magnús Már Traustason er tvítugur framherji sem var með 12,7 stig og 3,8 fráköst að meðaltali á öllu Íslandsmótinu en í úrslitakeppninni var hann með 14,6 stig í leik þrátt fyrir að skora ekki stig í lokaleiknum. Keflvíkingar skiptu í fimmta gír eftir að Friðrik Ingi Rúnarsson tók við liðinu og lykilatriði var að Friðriki Inga tókst að fá miklu meira út úr landsliðsbakverðinum Herði Axel Vilhjálmssyni. Hörður Axel var samt ekki eini íslenski leikmaður liðsins sem spilaði betur eftir að Friðrik Ingi tók við í febrúar. Næst á dagskrá er að finna erlendan leikmann en besti Bandaríkjamaðurinn í deildinni var án efa Amin Khalil Stevens hjá Keflavík sem var með 28,6 stig og 16,0 fráköst að meðaltali á Íslandsmótinu.
Dominos-deild karla Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira