Arnór lagði upp bæði mörk Hammarby Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. maí 2017 17:25 Arnór hefur skorað þrjú mörk og gefið þrjár stoðsendingar á tímabilinu. vísir/getty
Arnór Smárason lagði upp bæði mörk Hammarby í 2-2 jafntefli gegn Jönköpings Södra í sænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag. Arnór hefur byrjað tímabilið vel og er kominn með þrjú mörk og þrjár stoðsendingar í fyrstu 11 deildarleikjunum. Hammarby komst yfir með marki Pa Amat Dibba á 18. mínútu en átta mínútum síðar fékk Richard Magyar rauða spjaldið og heimamenn því einum færri. Dzenis Kozica jafnaði metin á 74. mínútu og þremur mínútum síðar kom Eric Ayuk Jönköpings yfir. Þegar mínúta var komin fram yfir venjulegan leiktíma jafnaði Mats Solheim í 2-2 eftir sendingu frá Arnóri og tryggði Hammarby stig. Skagamaðurinn spilaði allan leikinn fyrir Hammarby líkt og Ögmundur Kristinsson og Birkir Már Sævarsson. Hammarby, sem hefur gert þrjú jafntefli í röð, er í 7. sæti deildarinnar. Árni Vilhjálmsson var ekki í leikmannahópi Jönköpings sem er í 11. sæti. Elías Már Ómarsson lagði upp mark IFK Göteborg í 1-1 jafntefli við Elfsborg. Þetta var önnur stoðsending Keflvíkingsins á tímabilinu. Issam Jebali kom Elfsborg yfir strax eftir þrjár mínútur en Tobias Hysén jafnaði metin fimm mínútum fyrir hálfleik eftir sendingu Elíasar Más. Göteborg er í 10. sæti deildarinnar með 14 stig. Elías Már og félagar hafa aðeins unnið þrjá af 10 deildarleikjum sínum í sumar.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Geta bætt upp fyrir leikinn á Laugardalsvelli Sport Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Fleiri fréttir Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Bíða eftir upplýsingum um hráka Ísraelans Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Frakkland - Belgía 4-1 | Varamennirnir björguðu Frökkum Selfoss missir mikið efni Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Arnar sat fyrir svörum í Tallinn Dregur sig úr landsliðshópnum Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Markvörður Eista meiddur Gylfi með til Eistlands Fljúga til Færeyja í hádeginu Meiddist í Portúgal „Skilgreinandi augnablik“ „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Segir dyrnar opnar fyrir Ronaldo en biðst ekki afsökunar Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Zirkzee með sigurmark en Klopp áfram í brasi Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Karólína skoraði og Cecilía hélt hreinu í síðasta leik fyrir HM-umspilið Súrt jafntefli í seinni leiknum sem enginn vildi spila Arftaki Ronaldo áfram sjóðheitur í sigri Tveir í bann fyrir að bauna á Heimi og Ísraelar með sorgarbönd „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ „Þetta er bara víti og rautt spjald“ Sjá meira