Hjörtur sá rautt eftir 11 mínútur Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. maí 2017 16:25 Hjörtur og félagar lentu í 2. sæti dönsku úrvalsdeildarinnar þrátt fyrir að hafa tapað síðustu fimm leikjum sínum. vísir/getty
Hjörtur Hermannsson spilaði aðeins 11 mínútur þegar Bröndby tapaði fyrir Nordsjælland, 1-2, í lokaumferð úrslitariðils dönsku úrvalsdeildarinnar í fótbolta í dag. Teemu Pukki kom Bröndby yfir á 9. mínútu en aðeins tveimur mínútum síðar fékk Hjörtur reisupassann fyrir að brjóta á Karlo Bartolec sem var að sleppa í gegnum vörn Bröndby. Einum færri héldu leikmenn Bröndby forystunni fram á 55. mínútu þegar Marcus Ingvartsen jafnaði metin. Tveimur mínútum síðar skoraði Mathias Rasmussen sigurmark Nordsjælland sem endaði í 5. sæti riðilsins. Rúnar Alex Rúnarsson er enn frá vegna meiðsla hjá Nordsjælland. Bröndby endaði í 2. sæti þrátt fyrir að hafa tapað síðustu fimm leikjum tímabilsins. Þá tapaði liðið fyrir FC Köbenhavn í úrslitaleik dönsku bikarkeppninnar. Bröndby fer í Evrópudeildina ásamt Lyngby sem tók 3. sætið með frábærum endaspretti. Lyngby bar sigurorð af Midtjylland í dag, 0-3, og vann því síðustu fimm leiki sína. Hallgrímur Jónasson lék allan leikinn í vörn Lyngby sem kom mikið á óvart á tímabilinu. Hallgrímur lék alls 21 leik í dönsku deildinni í vetur.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Flugóður forseti FIFA Fótbolti Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Fótbolti Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fótbolti Missti mátt í hendinni eftir að hafa fengið golfkúlu í höfuðið Handbolti Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Fótbolti Heimsmeistarar fá hring Fótbolti Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Fótbolti „Fjögur ár eru langur tími“ Fótbolti „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Fótbolti Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? Fótbolti Fleiri fréttir Szoboszlai framlengir samninginn við Liverpool Aron Einar og Gyrðir Hrafn í Þór Svarar Romero fullum hálsi: „Veit um hvað ég er að tala“ Yngri bróðir með frábæra ferilskrá tekur slaginn með KA Bowen heldur tryggð eftir fallið Loftgæðin hættuleg leikmönnum Heimsmeistarar fá hring Sjáðu tvíburana í FH búa til mark í fyrstu tilraun Siggi Raggi græddi á lygilegri atburðarás Flugóður forseti FIFA Gráti nær þegar hann frétti að hann myndi dæma úrslitaleikinn Var rifrildið við Bellingham það sem kveikti í Messi? „Fjögur ár eru langur tími“ „Ég er fyrst og fremst vonsvikinn með sjálfan mig“ Ari Leifsson í Stjörnuna Þvottabjörn Haalands uppseldur og sá sem bjó hann til kominn á eftirlaun Fáum svo mörg færi að það er erfitt að skora ekki Haukakonur fengu stóran skell í síðasta leik fyrir endurkomu Söru Afturelding með fjögurra stiga forskot á toppnum Uppgjörið: Gri/Nja - FH 1-6 | Flugeldasýning sendi FH á toppinn Ástæðan fyrir því að Bellingham sló til Barco eftir leik Lærisveinar Sigga Ragga áfram eftir víti í uppbótartíma Bubbi fékk áritaða KR-treyju í afmælisgjöf Vestri - Qarabag 0-3 | Úr leik í Evrópudeild en Lettland á næsta leiti Víkingur Götu - Stjarnan 2-2 (3-5) | Gerðu nóg Donald Trump mun mæta á úrslitaleik HM Áfall fyrir Sverri og íslenska landsliðið Breska ríkisstjórnin vill sjá refsingu frá FIFA Elsti leikmaður HM leggur hanskana á hilluna Saliba frá í nokkra mánuði Sjá meira