Gylfi Þór Sigurðsson opnar Norðurá Jakob Bjarnar skrifar 2. júní 2017 15:37 Ef Gylfi Þór er eins góður með stöngina og boltann, þá hlýtur að fara svo að einhver lax stökkvi á flugu hans á morgun.
Gylfi Þór Sigurðsson knattspyrnukappi mun opna Norðurá auk einhverrar úr kvennalandsliðinu á morgun. Hins vegar hefur ekki tekist að ganga frá því hver og hvort vegna anna hjá liðinu. En, að sögn Einars Lúðvíkssonar, sem annast veiðileyfasölu í Norðurá, standa vonir til þess að einhver úr þeim frækna hópi sjái sér fært að mæta á árbakkann og sveifla stöng. Opnun Norðurár markar í hugum margra upphaf laxveiðitímabilsins. Og er alla jafna nokkur spenna ríkjandi; hver muni njóta þess heiðurs að vera fyrstur til að henda flugu fyrir lax þar. Í fyrra voru það stórsöngvararnir Kristinn Sigmundsson og Kristján Jóhannsson, sem léku við hvurn sinn fingur. Þar áður voru það svo Bubbi Morthens og Björgvin Halldórsson. Og ef við förum enn eitt ár aftur í tímann þá voru það Sigmundur Davíð Gunnlaugsson og Bjarni Benediksson, foringjar ríkisstjórnarinnar þá, sem tróðu sér í vöðlurnar. Gylfi er að feta í fótspor mikilla foringja.Ný og glæsileg aðstaða á bökkum Norðurár Einar var kátur þegar Vísir ræddi við hann. Enda stendur mikið til. Ný aðstaða verður kynnt sérstaklega á morgun; nýtt og stórglæsilegt veiðihús verður tekið í notkun. Hluti þess gamla stendur en hitt var rifið.Bó og Bubbi voru fengnir til að opna Norðurá fyrir tveimur árum, og það vafðist ekki fyrir þeim enda stangveiðióðir báðir tveir.visir/gva„Fjórtán ný herbergi sem öll snúa út að ánni, ný vöðlugeymsla, gufa,“ segir Einar og þylur upp það sem prýðir húsakynni við Norðurá. „Gjörbylting. Við tökum þetta í notkun á morgun. Uppúr hálf nýju verður þetta sýnt. Síðan mun formaður veiðifélags norðurár afhenda mér formlega lyklana að húsinu, presturinn mun blessa húsið og stökkva vígðu vatni á húsið. Og síðan ganga menn til veiða. Á slaginu ellefu ætla ég að láta byrja,“ segir Einar.Ekki bara fyrir einhverja útvalda Eins og áður sagði þá vonast Einar til að einhver þeirra drottninga sem skipa íslenska kvennalandsliðið sjái sér fært að mæta auk Gylfa Þórs. „En, þær eru mjög uppteknar núna. Erfitt að ná þeim saman. En, þetta verður mjög skemmtilegt,“ segir Einar. Hann veit ekki hversu mikill fluguveiðimaður Gylfi Þór er. „En, hann hefur veitt og vafalaust kann hann eitthvað fyrir sér í þessu,“ segir Einar og ljóst að eftirvæntingin er að ná tökum á honum. Hann segist vilja vekja athygli á því að stangveiðar eru mikilvægar fyrir þjóðarbúið, fjöldi fólks starfar við greinina og mörg afleidd störf tengist þessari starfsemi. „Þetta er stór grein og mér finnst vanta að fólk átti sig á því. Þá vil ég vekja athygli á þessu sem fjölskyldusporti, þetta er ekki bara fyrir einhverja fáeina útvalda.“
Mest lesið Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Vill auka aðgengi að verkjalyfjum Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Innlent Fleiri fréttir Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Sjá meira