Enska biskupakirkjan hylmdi yfir með barnaníðingi Kjartan Kjartansson skrifar 22. júní 2017 11:34 Justin Welby, erkibiskup af Kantaraborg, (f.m.) hefur beðist afsökunar á framferði kirkjunnar í garð fórnarlamba kynferðisofbeldis. Vísir/EPA
Æðstu ráðamenn ensku biskupakirkjunnar hylmdu yfir með fyrrverandi biskupi sem misnotaði drengi og karlmenn kynferðislega í tuttugu ár. Þetta er niðurstaða sjálfstæðrar rannsóknarnefndar. Peter Ball var biskup í Gloucester og Lewes. Hann hóf fangelsisafplánun í október 2015 eftir að hann var sakfelldur fyrir að hafa misnotað átján unga menn á aldrinum 17-25 ára sem höfðu leitað til hans frá 1977 til 1992. Hann afplánaði sextán mánuði og var sleppt í febrúar, að því er er kemur fram í frétt The Guardian. Biskupakirkjan er hins vegar sökuð um að hafa ekki brugðist rétt við brotum hans ítrekað yfir margra ára tímabil. Stjórnendur kirkjunnar virtust hafa haft meiri áhuga á að verja sjálfa sig en að sýna fórnarlömbum Ball samúð.„Óafsakanleg“ og „hneykslanleg“ hegðunTveir fyrrverandi erkibiskupar af Kantaraborg, æðstu biskupar kirkjunnar, eru sérstaklega gagnrýndir fyrir að hafa brugðist í máli Ball. „Kirkjan lagði á ráðin og hylmdi yfir frekar en að reyna að hjálpa þeim sem voru nógu hugrakkir til að stíga fram. Þetta er óafsakanlegt og hneykslanleg hegðun,“ segir Justin Welby, núverandi erkibiskup af Kantaraborg. Bað hann fórnarlömb Ball afsökunar á framferði kirkjunnar þjóna.Hátt settir embættismenn skrifuðu til stuðnings biskupinumÁ meðal þess sem kom fram við réttarhöldin yfir Ball á sínum tíma var að fjöldi hátt settra embættismanna, þar á meðal fyrrverandi erkibiskupinn George Carey, ónefndur meðlimur konungsfjölskyldunnar, ráðherrar og dómari hafi skrifað lögreglunni og saksóknurum til stuðnings Ball þegar ásakanir um kynferðislega misnotkun voru fyrst settar fram gegn honum árið 1993. Lögreglan sleppti Ball þá með viðvörun og hélt hann áfram störfum sem biskup. Eftir að hann lét af því embætti hélt hann áfram störfum í sautján opinberum skólum tiæ ársins 2007. Mál hans voru tekin aftur til rannsóknar árið 2012 og var hann þá sakfelldur. Neil Todd, fyrsta fórnarlamb Ball sem kom fram opinberlega, svipti sig lífi árið 2012 eftir þrjár fyrir sjálfsvígstilraunir.
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Fleiri fréttir Ótrúleg valdatíð Viktors Orban á enda Páfi hvergi banginn þrátt fyrir atyrði Trump Innanbúðarmaðurinn sem lagði Orbán Gerir yfirbót eftir vítisenglahótanir um páskana Trump hjólar í páfa Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Olíuverð hækkar enn meir í ljósi hótana Trumps Orbán játar sig sigraðan Orbán skákað í síðustu skoðanakönnuninni Faðir Mary drottningar látinn Mette Frederiksen leitar yfir miðju Trump setur blátt bann við siglingum um Hormússund Allra augu verða á Ungverjalandi í kvöld Íri réðst á bandaríska herflugvél með öxi Friðarviðræður runnu út í sandinn Komið að ögurstundu Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Trump „alveg sama“ um hvort samkomulag náist við Íran Augliti til auglitis í fyrsta sinn frá íslömsku byltingunni „Arc de Trump“ rísi í Washington Fullkomin lending eftir sögulega ferð Sakfelldur vegna sjálfsvígs eiginkonunnar Rasmussen setur þrýsting á Frederiksen Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Hótaði Rutte hefndaraðgerðum í reiðilestri í Hvíta húsinu Enn barist í Líbanon og Trump ósáttur við Írani Hriktir í stoðum MAGA: Trump ævareiður vegna gagnrýni stuðningsmanna sinna Á fjórða hundrað féllu í árásinni á miðborg Beirút Landsstjórn Færeyja hvetur til olíuvinnslu Þvertekur fyrir nokkur tengsl Sjá meira