Misvísandi skilaboð frá Hvíta húsinu Þórgnýr Einar Albertsson skrifar 24. júlí 2017 06:00 Samband Pútíns og Trumps hefur verið gagnrýnt. Nordicphotos/AFP
Misvísandi skilaboð hafa borist frá forsetaembætti Bandaríkjanna um ný lög sem fulltrúadeild Bandaríkjaþings samþykkti um nýjar viðskiptaþvinganir gegn Rússum. Lögin kveða einnig á um að minnka möguleika forsetans, Donalds Trump, á því að aflétta núverandi þvingunum. Því er forsetinn andvígur. BBC greindi í gær frá því að fjölmiðlafulltrúi forsetans, Sarah Huckabee Sanders, hefði sagt að forsetinn styddi nýju löggjöfina. Nýr samskiptastjóri Hvíta hússins, Antonio Scaramucci, sagði við CNN að forsetinn hefði ekki ákveðið sig. „Ég er bara búinn að starfa hér í tvo eða þrjá daga. Ég býst við því að hann ákveði sig fljótlega. Hann hefur ekki enn ákveðið hvort hann skrifi undir lögin,“ sagði Scaramucci. „Ríkisstjórnin styður valdbeitingu gegn Rússum, sérstaklega þegar kemur að því að koma á nýjum viðskiptaþvingunum,“ sagði Sanders. Forsetinn gæti neitað að skrifa undir lögin. Geri hann það er afar líklegt að andstæðingar hans segi það vegna meintra tengsla forsetaframboðs hans við rússnesk yfirvöld en alríkislögreglan rannsakar nú meint áhrif Rússa á kosningarnar. Lögin myndu ekki einungis heimila auknar þvinganir gegn Rússum fyrir innlimun þeirra á Krímskaga árið 2014. Einnig væri hægt að beita nýjum þvingunum gegn Írönum og Norður-Kóreumönnum.
Donald Trump Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Fleiri fréttir Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Glæpaforingi dæmdur fyrir morðið á Tupac Segir af sér eftir árekstra við Hegseth Hæstiréttur heimilar Trump að halda áfram með veislusalinn Íhuga fleiri árásir á Hormússund Evrópusambandið þurfi að vera meira aðlaðandi Nýr geimsjónauki á að varpa ljósi á huldukrafta alheimsins Afríkudeildin bjargaði herforingjastjórninni „Ég er konan sem kýldi hákarl í andlitið“ Staðfesta heimilisfesti jólasveinsins í Lapplandi „Þeir munu hengja mig“ „Hægriforréttindaöfl“ hafi talað minna megandi inn á nei Einungis sextán látnir í Tíbet en hundraða saknað Telja Rússa undirbúa nýja sókn á landi að Kænugarði Óttast um þúsund manns sem fastir eru í göngum í Nepal Sjá meira