Real Madrid vann Ofurbikar Evrópu í þriðja sinn á síðustu fjórum árum | Sjáðu mörkin Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 8. ágúst 2017 20:45 Real Madrid bar sigurorð af Manchester United, 2-1, í leiknum um Ofurbikar Evrópu sem fór fram í Skopje í Makedóníu. Þetta er annað árið í röð og í þriðja sinn á síðustu fjórum árum sem Real Madrid vinnur þennan árlega leik milli sigurvegara Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildarinnar. Real Madrid var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og var nálægt því að komast yfir á 16. mínútu þegar Casemiro skallaði í slánna. Átta mínútum síðar urðu Brasilíumanninum ekki á nein mistök þegar hann setti boltann framhjá David de Gea í marki United eftir sendingu frá Dani Carvajal. Staðan í hálfleik var 1-0 en á 52. mínútu jók Isco muninn í tvö mörk eftir sendingu frá Gareth Bale. Þá fyrst hresstust leikmenn United og Romelu Lukaku fékk skömmu síðar dauðafæri til að skora en skaut yfir. Bale skaut í slánna á 61. mínútu en aðeins mínútu minnkaði Lukaku muninn í 2-1 þegar hann fylgdi eftir skoti Nemanja Matic sem Keylor Navas varði út í teiginn. Þegar níu mínútur voru til leiksloka slapp Marcus Rashford einn inn fyrir vörn Real Madrid en lét Navas verja frá sér. Fleiri urðu mörkin ekki og Real Madrid fagnaði 2-1 sigri.
Real Madrid bar sigurorð af Manchester United, 2-1, í leiknum um Ofurbikar Evrópu sem fór fram í Skopje í Makedóníu. Þetta er annað árið í röð og í þriðja sinn á síðustu fjórum árum sem Real Madrid vinnur þennan árlega leik milli sigurvegara Meistaradeildar Evrópu og Evrópudeildarinnar. Real Madrid var sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og var nálægt því að komast yfir á 16. mínútu þegar Casemiro skallaði í slánna. Átta mínútum síðar urðu Brasilíumanninum ekki á nein mistök þegar hann setti boltann framhjá David de Gea í marki United eftir sendingu frá Dani Carvajal. Staðan í hálfleik var 1-0 en á 52. mínútu jók Isco muninn í tvö mörk eftir sendingu frá Gareth Bale. Þá fyrst hresstust leikmenn United og Romelu Lukaku fékk skömmu síðar dauðafæri til að skora en skaut yfir. Bale skaut í slánna á 61. mínútu en aðeins mínútu minnkaði Lukaku muninn í 2-1 þegar hann fylgdi eftir skoti Nemanja Matic sem Keylor Navas varði út í teiginn. Þegar níu mínútur voru til leiksloka slapp Marcus Rashford einn inn fyrir vörn Real Madrid en lét Navas verja frá sér. Fleiri urðu mörkin ekki og Real Madrid fagnaði 2-1 sigri.
Evrópudeild UEFA Fótbolti Meistaradeild Evrópu Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Elísa meðal tíu efstu á EM í utanvegahlaupum Sport Gamlir draugar sóttu að Arnari í Japan Fótbolti Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Fótbolti Fleiri fréttir Áfall fyrir Kanada skömmu fyrir HM Pérez endurkjörinn sem forseti Real Madrid „Ég var rosalega veik þegar sá leikur átti sér stað“ Ödegaard skoraði í síðasta leiknum fyrir HM Búist við því að Messi spili gegn Íslandi Landsliðsþjálfarinn á leið á spítalann: „Þetta er sjokk“ Eriksen hneig aftur niður og leikurinn blásinn af Verðandi leikmaður United kallaður inn í hópinn fyrir HM Forritaði HM getraunaleik og býður hundrað þúsund í verðlaun Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Skotar hættu við æfingaleik gegn Norðmönnum Ollie Kane kynntur til leiks Messi á bekknum í sigri Argentínu HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? „Ég verð að spila“ Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Standa á krossgötum og eigendaskipti líkleg Englendingar ósannfærandi í sigri Havertz aðalmaðurinn í sigri á Bandaríkjunum Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Brighton slær félagsskiptamet í Svíþjóð Vestri valtaði yfir Völsung Vonar að völlurinn verði ekki til vandræða Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Rauði djöfullinn Doku gerir varnarmenn gráhærða Slot hefur engan áhuga á starfinu hjá Fulham Formaður West Ham segir af sér vegna „falskra ásakana“ sem verða opinberaðar Landsliðsmenn Íran komnir með ferðaleyfi til Bandaríkjanna Borinn grátandi af velli viku fyrir HM Sjá meira