Airbnb-íbúðir oft tengdar mansali Helga María Guðmundsdóttir og Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifa 14. september 2017 22:21
Mansal er vaxandi vandamál á Íslandi og arðbær fyrir þá sem standa fyrir henni. Ráðstefnan Þrælahald nútímans fór fram á Grand hóteli í dag. Fram kom í fréttum Stöðvar 2 í kvöld að yfirmaður mansalsmála í Noregi segi nauðsynlegt að gera aðgerðarplan á Íslandi sem hægt sé að vinna eftir. „Þolendurnir semsagt eru í rauninni þannig að þeir tala kannski ekki endilega fyrir sjálfa sig, það er einhver sem fylgist með þeim, jafnvel sama hvað hann er að gera. Þolandinn veit kannski ekki endilega nákvæmlega hvar hann er,“ segir Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á Höfuðborgarsvæðinu um hvaða einkennum fólk eigi að horfa eftir. Hún segir að þolandinn ráði sýnilega ekki yfir sínu lífi og sínum líkama. „Við erum með miklu stærri hóp af erlendu verkafólki sem að við vitum að eru áhættuhópur og með sama hætti hafa verið vísbendingar um að vændi sé að aukast. „Það er hægt að setja fram aðgerðaráætlun á landsvísu þar sem tilgreind eru mikilvæg mál sem vinna ber að á Íslandi. Þetta er afar brýnt og stjórnvöld verða að koma slíkri áætlun á fót. Þá verður hægt að vísa til þessarar aðgerðaáætlunar og benda á að gripið hafi verið til þeirra ráðstafana sem framkvæmdastjórn ESB hefur reynt að koma á laggir í öllum aðildarríkjum Sambandsins. Færnin er fyrir hendi til að greina þetta og hjálpa. Þá munu fleiri fórnarlömb þora að stíga fram,“ segir Knut Bråttvik samhæfingarstjóri í mansali hjá KRIPOS í Noregi.Airbnb-íbúðir oft tengdar mansaliAðspurð um það hversu umfangsmikið mansal væri á Íslandi svaraði Alda Hrönn Jóhannsdóttir yfirlögfræðingur hjá lögreglunni að tilfellin væru fleiri en 20. Alda Hrönn ræddi mansal í beinni útsendingu í fréttum Stöðvar 2 í kvöld. Hún sagði meðal annars að almenningur þurfi að vera meðvitaður um það hvað er að gerast í kringum hann. „Þetta kann að vera í næstu íbúð, þetta eru Airbnb-íbúðir sem eru oft lánaðar og það er svolítil vændisstarfsemi sem fram fer í einhverjum þeirra íbúða. Það er líka varðandi hvernig fer fólk til og frá vinnu, er það frjálst ferða sinna? Vinnur það við sæmileg kjör, það er að segja, er vinnutíminn virtur, er hvíldartími virtur? Hvar býr fólkið, býr það fyrir ofan vinnustaðinn eða ekki? Eða í einhverri kjallaraholu eða 17 saman í tveggja herbergja íbúð? Eða hvernig eru aðstæður fólksins?“ Börn neydd í vasaþjófnaðÞau börn sem eru með foreldrum sínum eru oft send í vasaþjófnað. Aðspurð hvort það væri tilfellið hér á landi svaraði Alda Hrönn því játandi. „Við höfum ákveðnar vísbendingar um ákveðin mál já.“ Segir að næsta skref sé að vinna betur. „Við þurfum að skanna þetta betur og fræða betur þannig að við séum öll meðvituð.“ Hún sagði einnig mikilvægt að brýna fyrir fólki að tilkynna ef það grunar að mansal sé að eiga sér stað.Umfjöllun Stöðvar 2 má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.
Mest lesið Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Innlent Enn þykknar upp hjá SÁÁ Innlent Systir Haraldar er látin Erlent Kourani farinn úr landi Innlent Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Innlent 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Erlent Halda minningarstund fyrir Hönnuh Innlent Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Innlent „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Innlent Fleiri fréttir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Flugvirkjar Icelandair sagðir ætla að kjósa um verkfall Kourani farinn úr landi Kourani vísað úr landi Grjót á stærð við þvottavélar þar sem börn fara á leið í skóla „Litla daman okkar hefur heldur betur þurft að berjast“ Finni nikótínpúða á leikskólalóðinni og stingi upp í sig Segir Áfram Ísland ekki hafa borgað fyrir auglýsingu Þjóðmála Tilkynnt um innbrotsþjóf sem var enn inni Halda minningarstund fyrir Hönnuh Fjárlagafrumvarpið „köld kveðja til launafólks“ „Ég mun stúta þér og einhver skilar sér ekki í skólann“ Hanna Katrín átti fund með sendiherra Kína Viðraði hugmyndir um bandarískt Ísland við Bjarna „Við erum að gera stóra hluti í samgöngum“ Halla hæstánægð með stólaskiptin Próflaus á öfugum vegarhelmingi Uppstokkun í fullri sátt innan Framsóknar Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Sjá meira