Átján ára og tilnefnd fyrir bæði mark ársins og að vera sú besta í heimi Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 22. september 2017 16:00 Deyna Castellanos. Vísir/Getty
Deyna Castellanos þekkja kannski ekki margir en það gæti breyst því þessi knattspyrnukona er komin í hóp bestu knattspyrnukvenna heims og gæti orðið næsta stórstjarna í boltanum. Deyna Castellanos er aðeins átján ára gömul og spilar með Florida State liðinu í bandaríska háskólaboltanum auk þess að vera leikmaður með landsliði Venesúela. Íslensku FIFA gat það út í dag hverjir koma til greina fyrir árleg verðlaun Alþjóðaknattspyrnusambandsins fyrir besta knattspyrnufólk heims. Deyna Castellanos, sem er fædd í apríl árið 1999, var tilnefnd sem besta knattspyrnukona ársins ásamt þeim Lieke Martens frá Hollandi og Carli Lloyd frá Bandaríkjunum. Lieke Martens var kosin besti leikmaður EM í sumar þar sem hún varð Evrópumeistari með hollenska landsliðinu en hin bandaríska Carli Lloyd vann þessi verðlaun í fyrra.Your three candidates for #TheBest FIFA Women’s Player 2017:#DeynaCastellanos#CarliLloyd#LiekeMartens Who will be crowned #TheBest? pic.twitter.com/weJH9DCfB5 — #FIFAWWC (@FIFAWWC) September 22, 2017 Deyna Castellanos sló í gegn á HM 17 ára landslið Venesúela í fyrra og milli tímabila hjá Florida State þá lék hún með Santa Clarita Blue Heat í United Women's Soccer deildinni í Bandaríkjunum. Castellanos var kosin leikmaður ársins í United Women's Soccer deildinni og hefur síðan skorað 9 mörk í 8 leikjum með Florida State á nýju tímabili í bandaríska háskólaboltanum. Íslensku landsliðskonurnar Dagný Brynjarsdóttir, Berglind Björg Þorvalsdóttir og Elín Metta Jensen spiluðu allar með Florida State á sinum tíma. Deyna Castellanos var þó ekki aðeins tilnefnd sem besta knattspyrnukona heims því hún skoraði líka eitt af mörkum ársins. Mark hennar með 17 ára landsliði Venesúela kemur til greina fyrir Puskas-verlaunin í ár. Puskas-verðlaunin eru fyrir flottasta mark ársins og eru tíu glæsileg mörk tilnefnd. Deyna Castellanos er sú eina sem kemur til greina á báðum stöðum. Það er hægt að skoða mörkin og kjósa hér. Það kemur hinsvegar ekki mikið á óvart að þeir Cristiano Ronaldo, Lionel Messi og Neymar eru tilnefndir sem besti leikmaður heims í karlaflokki í ár.
Fótbolti Mest lesið Skoða stækkun typpa í skíðastökki Sport Sjáðu Dag Sig taka „Purple Rain“ með Prince á rafmagnsgítar Handbolti „Þetta er alveg ótrúlegur grís“ Sport Eini leikmaðurinn sem gaf boltann aldrei á EM Handbolti „Fannst ég mjög ryðgaður ef ég á að vera alveg hreinskilinn“ Sport Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Fótbolti Meistararnir stöðvuðu Mosfellinga Handbolti Uppgjörið: Valur - Haukar 34-41 | Hafnfirðingar tylla sér á toppinn Handbolti Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Fótbolti Gæti verið valinn fyrstur í nýliðavalinu en líka endað í tuttugu ára fangelsi Sport Fleiri fréttir Juve hent út úr bikarnum í vel heppnaðri hefndartilraun Alfons lá eftir en fékk svo boltann og skoraði Samþykkti að taka slaginn en sleit strax hásin Vinna hafin en langur vegur að stofnun nýs knattspyrnufélags í Breiðholti Fjölgar í hópi Íslendinga hjá Inter Skilur ekki af hverju Guéhi má ekki spila úrslitaleikinn Heillaður af Hollandi og lætur ekki háan verðmiða trufla sig „Þetta er Sádi-Arabía, ekki Ronaldo-Arabía“ „Kannski ekki með sömu FH-gleraugu og margir aðrir þjálfarar“ Liverpool seinkaði komu Jeremy Jacquet af ásettu ráði „Don Orri Steinn Óskarsson“ Orri hetjan er Sociedad tryggði sæti í undanúrslitum Manchester City mætir Arsenal í úrslitaleik Verkfalli Ronaldo lokið Mikil óvissa uppi varðandi Guardiola Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Sjá meira