Fellibylurinn Nate stefnir á suðurströnd Bandaríkjanna Kjartan Kjartansson skrifar 7. október 2017 09:11 Gervihnattamynd af Nafe yfir norðvestanverður Karíbahafi í gær. Vísir/AFP
Neyðarástandi hefur verið lýst yfir í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna við Mexíkóflóa vegna fellibyljarins Nate sem stefnir þangað á land. Fellibylurinn hafi þegar valdið dauða að minnsta kosti 23 manna í Mið-Ameríku. Fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna varar við lífshættulegum sjávarflóðum af völdum fellibyljarins frá Lúisíana í vestri til Albama í austri. Verið er að rýma hluta New Orleans-borgar, að því er kemur fram í frétt breska ríkisútvarpsins BBC. Nate er nú talinn fyrsta stigs fellibylur. Þegar hann var enn flokkaður sem hitabeltisstormur olli hann mannskaða í Níkaragva, Kosta Ríka og Hondúras. Stormurinn fór fram hjá ströndum Júkatanskaga í Mexíkó í nótt. Þrátt fyrir að Nate sé ekki eins öflugur og fellibyljirnir María og Irma getur hann enn valdið miklum usla með úrkomu, sjávarflóðum og hávaðaroki, ekki síst á láglendum svæðum eins og í Lúisíana. „Stærsta ógnin er ekki endilega rigningin heldur sterkir vindar og sjávarflóð,“ segir Mitch Landrieu, borgarstjóri New Orleans. Útgöngubanni var komið á í borginni í gærkvöldi og þúsund þjóðvarðliðar hafa verið ræstir út þar.
Mest lesið Gekk blóðugur í bakarí og sagðist hafa verið skotinn Innlent Sérsveitin bregst við „alvarlegu atviki“ á Kársnesi Innlent „Hamast í því að koma í veg fyrir að Miðflokkurinn komist að“ Innlent Myndskeið: Leiddur út í járnum eftir sérsveitaraðgerð á Kársnesi Innlent Lögregluaðgerð á Laugavegi Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Gleði á flöskuborði endaði með ásökun um nauðgun Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent „Hvað hafa þau að fela?“ Innlent Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Erlent Fleiri fréttir Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda Sjá meira