Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Sunna Sæmundsdóttir skrifar 12. september 2026 17:45 Atvinnuvegaráðherra hyggst í febrúar leggja fram frumvarp um breytingar á lögum um hvalveiðar þar sem sérstaklega verður litið til sjónarmiða um bann til frambúðar. Formaður Hvalavina hefði viljað sjá frumvarpið fyrr á dagskrá enda megi búast við mikilli umræðu en fagnar þó málinu.
Samkvæmt þingmálaskrá stefnir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra, að því að leggja í febrúar á næsta ári fram frumvarp um breytingu á lögum um hvalveiðar. Í þingmálaskránni segir að við gerð frumvarpsins verði litið til skýrslu starfshóps um stjórnsýslu og lagaumgjörð hvalveiða frá árinu 2025. Þá verði sérstaklega litið til sjónarmiða sem þar koma fram um bann við hvalveiðum til frambúðar og stjórnskipulegra álitaefna sem huga þurfi að í því sambandi, meðal annars með tilliti til atvinnufrelsis og eignarréttar. Vala Árnadóttir, formaður Hvalavina sem hefur barist gegn hvalveiðum á síðustu árum, fagnar málinu. Hún segist þó hafa viljað sjá það fyrr á dagskrá þingsins. „Við hefðum viljað sjá það núna í haust. Okkur þykir leitt að það sé ekki fyrr en í febrúar vegna þess að við vitum hvað svona mál geta dregist og þau geta þá jafnvel dregist inn á næsta sumar þegar hvalveiðivertíð hefst,“ segir Vala. Í þeim kafla skýrslunnar þar sem fjallað er um mögulegt bann til frambúðar er vísað til þess að leyfi til hvalveiða séu almennt gefin út til fimm ára, líkt og síðasta leyfi sem var veitt árið 2024. Væntingar þeirra sem stundi veiðar, þ.e. stjórnenda Hvals hf., geti því almennt ekki staðið til annars og meira en þessa að halda leyfinu í fimm ár. Verði bótaskylda talin fyrir hendi geti hún því varla miðast við lengra tímbil en leyfistímann, eða það sem eftir lifi af honum. Vala bindur vonir við að frumvarpið verði afgreitt fyrir næsta sumar og að tekið verði fyrir veiðarnar. „Mér finnst mjög mikilvægt að þingmenn átti sig á því að kannanir sýna að fleiri landsmenn eru orðnir á móti hvalveiðum eftir að hafa séð hvernig þær fara fram og eru með þá vitneskju að dýrin lifa langvarandi þjáningar. Fyrir nú utan það að jafnvel þó þú sért hægrisinnaður og íhaldssamur þá áttu auðvitað ekki að vera talsmaður atvinnugreinar sem að sýnir tap ár eftir ár eftir ár. Þannig að ég kalla eftir því að þingmenn kynni sér mikilvægi hvala í vistkerfi sjávar og þessa skýrslur og kjósi svo eftir eigin sannfæringu,“ segir Vala.
Hvalveiðar Hvalir Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Innlent Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Innlent Illa brugðið en heill á húfi Innlent Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Innlent Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Erlent Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Katla skelfur Innlent Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Fleiri fréttir Viðbúnaður á slóðum Vítisengla Katla skelfur Salma nýr formaður ungra Miðflokksmanna „Okkur finnst við vera undanskilin“ Viðvörunarmerki fyrir íslenskt samfélag Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Átta í bílunum fjórum: Sumir alvarlega slasaðir Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Sjá meira