Lífið

Kórar Íslands: Karlakórinn Esja

Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar
Karlakórinn Esja
Karlakórinn Esja
Kórar Íslands er nýr skemmtiþáttur sem verður á dagskrá Stöðvar 2 í vetur en Friðrik Dór Jónsson, einn ástsælasti söngvari landsins, er kynnir þáttanna. Dómnefndina skipa tónlistarfólkið Kristjana Stefánsdóttir, Ari Bragi Kárason, og Bryndís Jakobsdóttir. 

Fimmti þátturinn fer í loftið á sunnudaginn og koma þar fram fjórir kórar og keppa um tvö laus sæti áfram í undanúrslitin. Hér að neðan ætlum við að fá að kynnast Karlakórnum Esju sem kemur fram í fimmta þætti á sunnudagskvöldið í beinni útsendingu á Stöð 2 klukkan 19:10.

Karlakórinn Esja

Karlakórinn Esja var stofnaður í janúar 2013 en Kári Allansson, kirkjuorganisti Háteigskirkju hefur verið stjórnandi Esjunnar frá upphafi. Karlakórinn Esja hefur vaxið nokkuð jafnt og þétt síðastliðinn ár og farið frá því að vera 17 manna kór fyrsta starfsárið upp í að telja um 50 virka söngmenn í dag. Flestir söngmenn eru á aldrinum 25 til 35 ára og með tveimur undantekningum eru allir söngmenn undir fertugu.

Hér má sjá hvað gerist þegar Karlakórinn Esja fer saman í rúllustiga.

Kórinn hefur lagt mesta áherslu á að flytja hefðbundin íslensk kóralög. En hefur hins vegar á sínum katalog þó nokkur ,,léttari“ lög. En öll lög eru sungin á íslensku. Þrátt fyrir tiltölulega stuttan starfsaldur hefur kórinn fengið mikla reynslu í framkomu og óvænt orðið nokkuð vinsæll viðburðakór.

Hér að neðan má sjá kórinn syngja Ég er kominn heim (Ferðalok).








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.