Björgunarsveitir leita að rjúpnaskyttum við Heklu Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar 27. október 2017 20:12 Hópar frá björgunarsveitum á Suðurlandi eru komnir á leitarsvæðið og búið er að boða út leitarhunda og sporhund.
Björgunarsveitir á suðurlandi voru kallaðar út á sjötta tímanum í kvöld vegna rjúpnaskytta sem eru villtar í þoku á svæðinu við Heklu. Mennirnir eru óslasaðir og náðu að tilkynna sjálfir um neyð sína. Rjúpnaskytturnar eru í stopulu símasambandi og þeir halda kyrru fyrir á meðan björgunarsveitarfólk leitar að þeim. Hópar frá björgunarsveitum á Suðurlandi eru komnir á svæðið og búið er að boða út leitarhunda og sporhund. „Við erum komin með mögulega staðsetningu á þeim sem við fengum í gegnum símana þeirra og það eru hópar á leiðinni þangað núna,“ segir Davíð Már Bjarnason hjá Landsbjörgu. Hann segir að símarnir þeirra séu þó að verða straumlausir. „Það eru tæplega 50 að vinna að þessari aðgerð og fleiri á leiðinni. Það er mikil þoka og mikil rigning á þessu svæði og þeir eru orðnir kaldir, blautir og hraktir.“ Davíð telur að mennirnir séu þokkalega vel búnir en björgunarsveitarfólk hefur leitað þeirra í meira en tvær klukkustundir. Útkallið barst klukkan 18:20 en leitarsvæðið er erfitt yfirferðar. „Þetta er torfært svæði, hraun og tekur tíma að fara yfir það.“Fréttin hefur verið uppfærð.
Mest lesið Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Innlent Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Innlent Blóðbað á lestarpalli Erlent Sonur þingmannsins ákærður Innlent Fleiri fréttir Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Kveiksþætti kippt út tímabundið Söfnuðust saman við sendiráðið og mótmæltu refsiaðgerðum Sjá meira