Lífið

Dreymir um að taka þátt í Eurovision

Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar
Hér er hún Selma Bríet með úkúlelið sem hún er að æfa sig að spila á.
Hér er hún Selma Bríet með úkúlelið sem hún er að æfa sig að spila á. Vísir/Anton Brink
Hún Selma Bríet Andradóttir er átta ára gömul og er byrjuð að semja lög og læra söng. 

Selma Bríet er í Barnaskóla Hjallastefnunnar í Hafnarfirði en hver er uppáhaldsnámsgreinin hennar?

Mér finnst lestur skemmtilegastur af því það er alltaf eitthvað spennandi að gerast í bókum.

Æfir þú eitthvað utan skólans? Ég er að æfa handbolta í FH, söng í Söngskóla Maríu Bjarkar og svo er ég líka að læra á úkúlele.

Hvert er uppáhaldslagið þitt? Já, það heitir Vetur og ég samdi það sjálf með vinkonu minni Erlu Lilju í fyrra. Lagið Ást með Ragnheiði Gröndal er líka uppáhaldslagið mitt og Augnablik með Öldu Dís er líka mjög skemmtilegt lag.



Hvaða söngvarar finnst þér bestir? Uppáhaldssöngkonurnar mínar eru Alda Dís, Ragnheiður Gröndal og uppáhaldssöngvarinn minn er Páll Óskar.



Hvað gerir þú helst í frístundum? Þegar ég á frí elska ég að föndra, leika við vinkonur, æfa mig að syngja og svo er ég stundum að semja tónlist.

Dreymir þig um eitthvað sérstakt í framtíðinni? Já, mig dreymir um að taka þátt í Eurovision og mig dreymir líka um að allir í heiminum séu vinir.

Hvað er það skrítnasta sem hefur komið fyrir þig? Það er þegar ég var einu sinni að fara í afmæli og ég gleymdi að fara í skó. Ég labbaði út á sokkunum og settist inn í bílinn og mamma keyrði af stað. Allt í einu fattaði ég að ég væri ekki í neinum skóm. Það var mjög skrýtið.

Hvað langar þig að verða þegar þú ert orðin stór? Þá langar mig að verða söngkona.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.