Heimilisofbeldi markaði nóttina Stefán Ó. Jónsson skrifar 30. október 2017 06:01 Myndin er sviðsett. Vísir/Getty
Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust þrjár tilkynningar um heimilisofbeldi í nótt. Í aðeins einu málanna voru hendur hafðar í hári þess brotlega. Fyrsta tilkynningin barst á sjötta tímanum úr hverfi 105, Hlíðum og Holtum. Að sögn lögreglu hafði þar fyrrverandi maki reynt að brjótast inn en var farinn þegar lögreglan kom á vettvang. Um tveimur klukkustundum síðar var aftur tilkynnt um heimilisofbeldi í hverfi 105. Lögreglan hafði þá erindi sem erfiði og handtók árásarmanninn. Var hann í kjölfarið vistaður í fangageymslu. Í dagbók lögreglunnar er ekki greint frá því hvort að málin tvö tengist með einhverjum hætti eða hvort að um algjörlega óskyld mál sé að ræða. Þriðja tilkynningin barst svo skömmu fyrir klukkan 1 í nótt úr Árbæ. Árásarmaðurinn var á bak og burt þegar lögreglan kom á svæðið. Ekki er nánar greint frá málavöxtum eða hvort einhver liggi undir grun. Þá voru að sama skapi þrír menn í annarlegu ástandi handteknir í nótt, í þremur aðskildum málum. Allir voru þeir færðir í fangaklefa þar sem þeir hafa nýtt nóttina til að sofa úr sér.
Lögreglumál Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Fá engar bætur fyrir stolin bíl Innlent Háttsettur sænskur diplómati handtekinn fyrir njósnir Erlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Hjörtur Torfason er látinn Innlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Innlent Fleiri fréttir Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolin bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Fólk varað við aukinni hættu á gróðureld Sala á Íslandsbankabréfum hafin og Jón Óttar sakar Ólaf Þór um leka Rannsóknarleyfi Rastar hafnað Telur víst að gögnin hafi komið frá sérstökum sjálfum Miðhúsabraut lokuð eftir að ekið var á vegfaranda á hlaupahjóli Yfir þrjú hunduð eftirskjálftar Sjá meira