Íslenskar fótboltastelpur meistarar út um öll Bandaríkin Tómas Þór Þórðarson skrifar 8. nóvember 2017 23:00 Esther Rós, Ólína Sif og Aníta Sól. mynd/soccer and education USA
Þrjár íslenskar fótboltastelpur fögnuðu á dögunum sæti með sínum liðum í úrslitakeppni NCAA-háskólaboltans sem er efsta deildin í háskólaíþróttum Bandaríkjanna. Þetta eru Blikinn Ester Rós Arnarsdóttir sem er tvítug, hin 21 árs gamla Ólína Sif Einarsdóttir frá Sauðárkróki og Skagamærin Aníta Sól Ágústsdóttir sem einnig er tvítug. Esther Rós spilar í sólinni á vesturströndinni með San Diego State en liðið vann sína deild og tekur þátt í úrslitakeppninni. Esther kom fimmtán ára inn í lið Breiðabliks árið 2012 og á 71 leik að baki í deild og bikar hér heima með Breiðabliki, Fjölni og ÍBV. Ólína Sif og stöllur hennar í Missouri State unnu Missouri Valley-mótið og komust þannig í úrslitakeppnina en þetta verður í fyrsta skipti í 17 ár sem Missouri State tekur þátt í úrslitakeppninni. Sauðkrækingurinn byrjaði einnig fimmtán ára að spila með meistaraflokki Tindastóls og á 69 leiki að baki fyrir liði í B-deildinni. Hún spilaði ellefu leiki með sínu liði í 1. deildinni í sumar. Loks varð Skagastúlkan Aníta Sól Ágústsdóttir svo meistari í Sun Belt-deildinni með South Alabama en Skagamærin fékk stórt hlutverk í liðinu á sínu fyrsta ári í háskóla. South Alabama er einnig á leið í úrslitakeppnina. Stelpurnar þrjár fengu allar skólastyrk í gegnum Soccer and Education USA sem hjálpar íslenskum fótboltakrökkum að fá styrki hjá góðum skólum. Myndirnar voru fengnar frá Instagram-síðu Soccer and Education. Til hamingju Esther Mountain West Champoins San Diego State unnu sitt “Conference” eða sína deild og eru á leið í NCAA úrslitakeppnina A post shared by Soccer and Education USA (@soccerandeducationusa) on Nov 5, 2017 at 2:10pm PST Ólína Sif og þær í Missouri State unnu “Missouri Valley Tournament” og eru á leið í NCAA úrslitakeppnina í fyrsta sinn í 17 ár! A post shared by Soccer and Education USA (@soccerandeducationusa) on Nov 6, 2017 at 3:39am PST Til hamingju Aníta Sól! University of South Alabama unnu “Sun Belt Conferenc-ið” og eru á leið í úrslitakeppni NCAA. Aníta er freshman og fékk risa hlutverk á þessu tímabili A post shared by Soccer and Education USA (@soccerandeducationusa) on Nov 7, 2017 at 9:24am PST
Fótbolti Mest lesið Dagur tók upp gítarinn og söng í bronsgleði Króatanna Handbolti Brand miðlar málum eftir föst skot Alfreðs Handbolti Kom í einkaflugvél á Ólympíuleikana Sport Erum við ósanngjörn við Ómar Inga sem þjóð? Handbolti Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Enski boltinn Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Enski boltinn „Það mun allt skýrast á næstu tveimur vikum“ Handbolti Ellefu ára strákur verður óvænt hluti af setningarhátíð Ólympíuleikanna Sport Sara var lengi lásskjámynd Eyglóar en nú er Eygló á símanum hjá Söru Sport Extraleikarnir: Bannað að bíta og nýtt met í gryfjuhlaupi Sport Fleiri fréttir Enginn Ásgeir í öflugri einkadeild Seðlabankans Böðvar kominn til ÍA frá FH Verjast fótboltabullum með andlitsgreiningu á völlunum Á Man. City séns? „Þetta rokkar allt of mikið hjá þeim“ Chelsea reyndi nýstárlega aðferð til að stoppa hornin hjá Arsenal Guardiola segir að pressan sé á eyðsluseggjunum í deildinni Reif buxurnar nánast af Yamal sem lét ekki stoppa sig Chelsea fann aldrei glufu og Arsenal fer á Wembley Andri aftur með og loksins vannst sigur Víkingar keyptu Helenu af Val Enginn vill efnilega Liverpool-manninn Hættir hjá félaginu eftir að börnin hans urðu fyrir kynþáttaníði Stjarnan sækir miðvörð að vestan Afar rólegur lokadagur félagaskiptagluggans Úkraínumenn æfir vegna orða forseta FIFA: „Minnir á Ólympíuleikana 1936“ Vilja banna krökkum að skalla boltann í fótbolta Forseti FIFA vill fá Rússland inn aftur: „Bannið hefur skapað meiri gremju og hatur“ Chelsea tók fyrirliða Strasbourg til baka Tottenham vann Arsenal í baráttu um skoskan táning Sláin inn í þægilegum sigri Sunderland Hin efnilega Emelía lánuð til Kaupmannahafnar Stefán Ingi seldur til Hollands fyrir metverð Kralj fer til Keflavíkur Sandra fór illa með færin í tapi gegn úlfynjunum Mateta fer ekki til Mílanó Valgeiri létt eftir langa martröð Ísak Andri til Danmerkur rétt fyrir lok gluggans Ronaldo í fýlu og skrópar í leik kvöldsins Jón Dagur bætist í Íslendingalið Freys Meistararnir fá liðsstyrk af Akranesi Sjá meira