Borche: Ekkert jákvætt í þessum leik Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 16. nóvember 2017 21:31 Borche Ilievski, þjálfari ÍR. Vísir/Ernir
Borche Ilievski, þjálfari ÍR-inga, var ekki sáttur með sína menn í kvöld, en liðið tapaði á heimavelli fyrir Val, 76-90, í Domino’s deild karla. „Ég varaði liðið mitt við því alla vikuna að Valur er mjög agað lið. Þeir eru skipulagðir, líkamlega sterkir og færir í körfubolta,“ sagði Borche eftir leikinn. „Við opnuðum leikinn vel, en við héldum okkur ekki við okkar leikáætlun. Sóknarskipulagið var ekki að virka, við vorum stressaðir og við leyfðum þeim að skora 50 stig í fyrri hálfleik.“ ÍR-ingar skoruðu fyrstu sex stig leiksins, en töpuðu fyrsta leikhluta 15-32 og voru 33-54 undir í hálfleik. „Liðið sem neyðist til að spila í vörn getur ekki fengið á sig 50 stig í fyrri hálfleik. Sumir leikmenn okkar voru ekki að fylgja skipulaginu og við vorum stressaðir.“ „Við þurfum að spila vörn í 40 mínútur.“ Valsmenn spiluðu varnarleikinn mjög vel í kvöld og áttu ÍR-ingar fá svör og gekk illa að skora. „Við tókum slæmar ákvarðanir og vorum að láta ákvarðanir dómaranna trufla okkur.“ „Við þurfum að fara yfir leikinn og greina hann og læra af mistökum okkar.“ En hvað getur Borche tekið jákvætt út úr leiknum? „Ég get ekkert jákvætt tekið úr leiknum. Við stóðum okkur ekki, hvorki sóknarlega né varnarlega,“ sagði Borche Ilievski.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun: ÍR - Valur 76-90 | Valsmenn völtuðu yfir ÍR-inga Valsmenn pökkuðu toppliði ÍR saman í Seljaskóla 16. nóvember 2017 21:45 Mest lesið Gunnlaugur Árni hefur lokið keppni á US Open Golf Gunnlaugur fékk ekki að klára hringinn en endaði á fugli Golf Freyr varð dapur: „Fáir en valdamiklir menn sem fannst þetta góð hugmynd“ Fótbolti Leggja inn kvörtun til FIFA vegna Messi Fótbolti Rekin fyrir falsfrétt um að pabbi Messi væri dáinn Fótbolti Birtir myndband af því þegar fyrirliði KR brotnaði á báðum Íslenski boltinn Hakimi dreginn fyrir dóm: „Aldrei orðið mál ef ég væri ekki frægur“ Fótbolti Cristiano Ronaldo eftir Kongó-klúðrið: „Það vantaði ekkert upp á“ Fótbolti Gunnlaugur þurfti að slá yfir hús og fullt af fólki til að ná fugli Golf Sjáðu innslagið um Gunnlaug Árna í útsendingu US Open Golf Fleiri fréttir Martin og félagar tryggðu sér oddaleik um titilinn Ben Stiller vinnur að heimildarþáttaröð um Knicks Martin lentur undir í úrslitaviðureigninni Ólafur Ólafs fékk fálkaorðuna Kristófer og Guðrún eignuðust son Íslandsmeistararnir bæta við sig tveimur sterkum leikmönnum Voru risinn fyrir áratug síðan en munu nú ekki senda lið til leiks Besti ungi leikmaður síðasta tímabils í Ármann Viktor tekur við Haukum Ásta Júlía kveður Val Hilmar Smári áfram í Stjörnunni Hermaðurinn Haukur í Stólana Basile yfirgefur Stólana og semur við Álftanes Martin með mikilvæg stig í sigri Alba Berlin Meistari í fyrsta skipti í 53 ár Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Elvari og félögum sópað í sumarfrí Martin nálægt tvennunni en Alba Berlin tapaði fyrsta leiknum Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Sjá meira
Umfjöllun: ÍR - Valur 76-90 | Valsmenn völtuðu yfir ÍR-inga Valsmenn pökkuðu toppliði ÍR saman í Seljaskóla 16. nóvember 2017 21:45