Domino's Körfuboltakvöld: Þessir voru bestir í sjöttu umferð Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 11. nóvember 2017 19:15
Sjötta umferð Domino's deildar karla kláraðist á stórleik Grindavíkur og KR í gærkvöld. Eftir leikinn var umferðin gerð upp í Domino's Körfuboltakvöldi þar sem sérfræðingarnir völdu leikmann og lið umferðarinnar. Leikmaður umferðarinnar var Pétur Rúnar Birginsson úr Tindastól, en hann átti stórleik á fimmtudag og skóp sigur Stólanna á Keflavík á útivelli. Pétur Rúnar skoraði 21 af 31 stigi Tindastóls í þriðja leikhluta og þar af komu 19 þeirra í röð. Bakvörðurinn var með samtals 26 stig í leiknum, tók sjö fráköst og var með 13 stoðsendingar. Hann var með 36 framlagspunkta í leiknum og var besti maður vallarins. Pétur Rúnar er að sjálfsögðu einnig í liði umferðarinnar. Með honum þar eru Austin Magnus Bracey, Ryan Taylor, Kári Jónsson og Ólafur Ólafsson. Þjálfari liðsins er Israel Martin. Austin var með 34 stig í frábærum sigri Vals á Stjörnunni í framlengdum leik í gærkvöld. Ryan Taylor var stigahæstur ÍR-inga sem tóku Þór Þorlákshöfn og Kári Jónsson var besti maður vallarinns í sigri Hauka á Hetti. Ólafur var að vanda drifkrafturinn í liði Grindavíkur sem bar sigurorð af Íslandsmeisturum KR í einvígi liðanna sem börðust um titilinn á síðasta tímabili.
Dominos-deild karla Mest lesið Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Körfubolti Kveðst skilja vel hvers vegna Guðmundur var rekinn Handbolti Ekitike tryggði sigurinn og fór beint í sturtu Enski boltinn Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Körfubolti Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Körfubolti Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Körfubolti „Ekkert eðlilegt að hlaupa ósofin í allan þennan tíma“ Sport Gekk ósátt af fundi KSÍ: „Hefði viljað að útkoman væri önnur“ Fótbolti Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Körfubolti Sjáðu vítið sem gerði Blika æfa: „Ótrúlegt að enginn af dómurunum sjái þetta“ Íslenski boltinn Fleiri fréttir Áfall fyrir Houston Forráðamenn KKÍ neita að tjá sig um dómaramálin Fannst skilaboðin frá dómaranefnd galin Mynd af ellefu ára leikmanni Real vekur athygli Davíð hættur: „Dreginn á asnaeyrunum“ Skömmuðust sín fyrir tap gegn Fjallinu: „Hann var ekki svona stór þá“ Anthony Davis byrjaður að æfa á ný Ólöf Helga tekur við stjórninni: „Orðnar mjög spenntar fyrir fyrsta þætti“ NBA Evrópudeildin muni hefjast eftir tvö ár Tryggvi varði flest skot á EM og tók næstflest fráköst Þjóðverjar Evrópumeistarar í annað sinn Grikkir stálheppnir að landa bronsinu Tyrkir pökkuðu Giannis og Grikkjum saman á leið í úrslit „Að spila á Íslandi er frábært tækifæri fyrir mig“ Þjóðverjar í úrslit EM í fyrsta sinn í tuttugu ár Bertone á leið í Stjörnuna en byrjar í fimm leikja banni Annar fyrrverandi leikmaður Sacramento Kings til Álftaness Telur ólíklegt að Kawhi eða Clippers verði refsað Slóvenar saltvondir út í dómarana: „Hvað er hægt að segja?“ Þjóðverjar í undanúrslit þrátt fyrir stórleik Doncic Álftanes mætir stórliði Benfica Finnar afgreiddu Georgíu með stæl Grikkland í undanúrslit á EM Tyrkir hentu Íslandsbönunum úr leik Njarðvíkingar semja við öðruvísi Kana Ísraelar númeri of litlir fyrir Grikki Slóvenar sluppu með skrekkinn gegn Ítölum Óvænt þegar Georgía sló Frakkland út Nýi ríkisborgarinn leiddi Pólverja til sigurs Angel Reese í hálfs leiks bann Sjá meira