Sadio Mané með stoðsendingu þegar Senegal varð 24. þjóðin til að tryggja sig inn á HM Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. nóvember 2017 19:11 Sadio Mané í leik með Liverpool. Vísir/Getty
Senegalar verða með Íslendingum á heimsmeistaramótinu í Rússlandi næsta sumar en þetta varð ljóst eftir sigur landsliðs Senegal í Suður-Afríku í kvöld. Senegal vann 2-0 útisigur á Suður-Afríku og tryggði sér þar með sigur í riðlinum þótt að liðið eigi enn eftir að spila við Suður-Afríku á heimavelli. Liverpool-maðurinn Sadio Mané lagði upp fyrra mark liðsins sem Diafra Sakho skoraði strax á tólftu mínútu. Diafra Sakho spilar með West Ham og mætti Mané í ensku úrvalsdeildinni um síðustu helgi. Seinna mark Senegal var sjálfsmark leikmanns Suður-Afríku á 38. mínútu. Senegal er með fimm stigum meira en Búrkína Fasó þegar aðeins ein umferð er eftir. Senegal er þriðja Afríkuþjóðin sem nær að tryggja sig inn á HM á eftir Egyptalandi og Nígeríu. Tvö sæti eru enn laus en Afríka mun eiga fimm lið á heimsmeistaramótinu í Rússlandi. Landslið Senegal hefur aðeins einu sinn áður komist á HM en það var á HM í Suður-Kóreu og Japan þegar Senegal vann meðal annars ríkjandi heimsmeistara Frakka í fyrsta leik og komst alla leið í átta liða úrslit.QUALIFIED! Congratulations, Senegal! They're heading back to the #WorldCup for the first time since 2002! #WCQpic.twitter.com/HzVMDYsS7R — FIFA World Cup (@FIFAWorldCup) November 10, 2017
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ Sjá meira