Rússabannið hefur engin áhrif á strákana okkar á HM á næsta ári Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. desember 2017 16:30 HM 2018 fer fram. Svo er víst. vísir/ernir
Bann Rússa frá þátttöku á Vetrarólympíuleikunum í febrúar á næsta ári hefur engin áhrif á undirbúning Rússlands fyrir HM í fótbolta sem fram fer næsta sumar, að sögn FIFA. Alþjóðaólympíunefndin tilkynnti í gær úrskurð sinn um að meina rússneskum íþróttamönnum þátttöku á Ólympíuleikunum í Pyongyang í Suður-Kóreu út af kerfisbundnu og stórfelldu lyfjamisferli. Þeir Rússar sem geta sýnt fram á að þeir eru hreinir mega þó keppa í Suður-Kóreu undir hlutlausu flaggi en Rússar eru ekki velkomnir. Rússum var einnig meinuð þátttaka á sumarleikunum í Ríó á síðasta ári en þetta hefur engin áhrif á HM 2018 í fótbolta sem fyrr segir þar sem strákarnir okkar í íslenska landsliðinu verða í fyrsta sinn í sögunni. FIFA ætlar að halda áfram eftir plani þrátt fyrir að Vitaly Mutko, fyrrverandi íþróttamálaráðherra og núverandi varaforsætisráðherra, sé bannaður frá aðkomu að Ólympíuleikum til frambúðar. Mutko er lykilmaður í undirbúningsnefnd HM 2018. „FIFA veit af ákvörðun Alþjóðaólympíunefndarinnar en hún hefur engin áhrif á undirbúninginn fyrir HM 2018. Við munum halda áfram að skipuleggja það sem verður vonandi frábær viðburður,“ segir í fréttatilkynningu frá FIFA.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ Sjá meira