Malmö á bara eftir að semja um kaupverð á Arnóri Ingva Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. desember 2017 09:04 Arnór Ingvi fór til AEK frá Rapid Vín í sumar vísir/getty
Arnór Ingvi Traustason, landsliðsmaður í fótbolta, er líklega á leið aftur í sænsku úrvalsdeildina en Svíþjóðarmeistarar Malmö eiga bara eftir að semja um kaupverð á honum við austurríska félagið Rapid Vín. Þetta kemur fram í frétt í Expressen í dag en þar segir að Arnór Ingvi sé búinn að semja um kaup og kjör við sænska félagið. Hann er nú á láni hjá AEK í Aþenu en fær ekkert að spila. Arnór Ingvi fékk lítið að spila með Rapid Vín á síðustu leiktíð og var því lánaður til AEK þar sem hlutirni fóru úr öskunni í eldinn. Hann er aðeins búinn að koma við sögu í þremur leikjum AEK af þrettán í deildinni og er oftast utan hóps. Njarðvíkingurinn, sem gerði garðinn frægan með Keflavík í Pepsi-deildinni áður en hann fór út í atvinnumennsku, fór á kostum með Norrköping í sænsku úrvalsdeildinni og varð meistari með liðinu fyrir tveimur árum. Hann þarf að byrja að spila meira til að missa ekki af HM-lestinni en hver spiluð mínúta landsliðsmanna skiptir nú meira máli en nokkru sinni fyrr í aðdraganda heimsmeistaramótsins. Sjálfur vill Arnór Ingvi ekkert segja við Expressen og bendir á umboðsmann sinn en fátt virðist geta komið í veg fyrir endurkomu Arnórs í sænsku úrvalsdeildina.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn Heppinn að vera á lífi eftir rosalegan 15 bíla árekstur Sport Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Enski boltinn „Guð morning!“ Enski boltinn „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Fótbolti Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar Enski boltinn Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Enski boltinn Sætir gagnrýni fyrir ummæli helgarinnar Formúla 1 KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Fleiri fréttir Hver gæti tekið við af Carrick? Þurfti að sauma 50 spor eftir hundaárás Sakar leikmenn Manchester United um ófagmennsku utan vallar KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því „Hann brást hrapallega sem manneskja“ Sjáðu ræðu Óskars fyrir markaveislu KR-liðsins Mbappé með bæði mörkin í sigri á Barcelona „Guð morning!“ Skaut á Liverpool eftir leikinn: „Aðeins eitt lið reyndi að skapa“ Orri skoraði í þriðja leiknum í röð Katla tryggði Fiorentina sigur „Þetta snýst ekki um mig“ Hákon Arnar meiddist Guðlaugur Victor lagði upp mark í stórsigri í Íslendingaslag „Við verðum að líta í eigin barm“ Newcastle vann í London og sanngjarn jafntefli í Hull Siggi Raggi gerði NSÍ Runavík að meisturum Varð markahæstur í deildinni gegn bróður sínum. Mikael Egill var hetja Genoa í sigri Fékk tvö gul spjöld á innan við mínútu Ásdís Karen með tvennu í góðum sigri Liverpool - Brighton 2-0 | Góð byrjun kláraði mávana Manchester United - Bournemouth 0-3 | Niðurlægingin tekur engan endi Bruno settur á bekkinn Sjáðu rauða spjald Palmer og Arsenal jafna Man. City Sjáðu Aron bæta markametið og spennu hjá Þór „Ég vissi ekkert um Ísland á þessum tíma“ Siggi Raggi getur gert NSÍ að Færeyjameisturum í dag Infantino segist njóta gríðarlegs stuðnings Sjá meira