Íslenska karlalandsliðið spilar á heimavelli San Francisco 49ers Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. janúar 2018 10:30 Levi's Stadium. Vísir/Getty
Knattspyrnusamband Íslands hefur nú staðfest að íslenska karlalandsliðið munu mæta Mexíkó í vináttulandsleik 23. mars næstkomandi. Fjórum dögum síðar mætir íslenska liðið síðan landsliði Perú. Báðir leikir fara fram í Bandaríkjunum en á sitthvorri ströndinni. Leikurinn á móti Mexíkó fer fram á Levi´s leikvanginum í San Francisco, heimavelli ruðningsliðsins San Francisco 49ers. Ísland mætir síðan Perú á Red Bull Arena í Harrison í New Jersey 27. mars en það er heimavöllur MLS-fótboltaliðsins New York Red Bulls. Íslensku strákarnir fljúga því strandanna á milli í Bandaríkjunum í lok mars. Levi´s leikvangurinn var tekinn í notkun sumarið 2014 en hann tekur tæplega sjötíu þúsund manns í sæti. Ísland og Mexíkó hafa þrisvar mæst áður í vináttulandsleikjum og í öll skiptin einmitt í Bandaríkjunum. Fyrst mættust liðin árið 2003 í Phoenix (0-0), næst 2010 í Charlotte (0-0) og loks í Las Vegas í fyrra, þar sem Mexíkó vann 1-0 sigur, fyrir framan mesta áhorfendafjölda sem sótt hefur knattspyrnuleik í Las Vegas. Mexíkó er í 17. sæti á nýutgefnum styrkleikalista FIFA, en Ísland er í 20. sæti.
HM 2018 í Rússlandi Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ Sjá meira