Eiginmaðurinn grunaður um að hafa myrt Janne Samúel Karl Ólason skrifar 12. janúar 2018 21:48 Síðast sást til Janne Jemtland að morgni 29. desember síðastliðinn. Norska lögreglan/Getty
Lögregla í Noregi hefur handtekið eiginmann hinnar 36 ára gömlu Janne Jemtland og hefur hann verið úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um að hann hafi myrt eiginkonu sína. Hennar hefur verið saknað frá því fyrir áramót og í síðustu viku fannst blóð úr henni á jörðinni á vegi nærri Brtumunddal, um hundrað kílómetra norður af höfuðborginni Ósló. Lík hennar hefur ekki fundist enn. Lögreglan segir, samkvæmt NRK, að ekki sé búist við því að hún muni finnast á lífi. Eiginmaðurinn var handtekinn fyrr í dag og var hann ákærður eftir langa yfirheyrslu samkvæmt lögreglunni. Áður en hann var handtekinn höfðu tveir bílar þeirra verið færðir í vörslu lögreglunnar þar sem sérfræðingar leituðu í þeim. Ekki liggur fyrir hvort að blóð eða eitthvað annað hafi fundist í öðrum þeirra. Janne Jemtland hefur verið saknað síðan 29. desember. Síðast sást til Jemtland á heimili hennar í Veldre um klukkan 2 að nóttu, 29. desember. Jemtland og eiginmaður hennar höfðu þá verið í jólaveislu og tekið leigubíl heim. Það var eiginmaður hennar sem tilkynnti um hvarf hennar þann 30. desember.Í fyrstu stóð að eiginmaðurinn hefði verið ákærður fyrir að myrða Janne. Hið rétta er að hann hefur einungis verið úrskurðaður í gæsluvarðhald og er grunaður um morð. Fréttin hefur verið uppfærð með það í huga.
Norðurlönd Tengdar fréttir Fundu blóð úr norskri konu sem saknað er Lögregla í Noregi hefur staðfest að blóð sem fannst á jörðinni í norskum skógi í gær sé úr Janne Jemtland, 36 ára norskri konu sem hefur verið saknað síðan fyrir áramót. 7. janúar 2018 13:44 Mest lesið Söknuðu nærgætni og umhyggju eftir háska á Ibiza Innlent „Ég er bara ótrúlega leiður yfir þessu“ Innlent Gerðu stutt hlé á sprengingunum en séu enn á áætlun og verði búin í lok október Innlent Á spítala eftir misheppnaða aftöku Erlent Valgerður réttir fram sáttahönd Innlent Tilkynnt um ölvaðan flugmann Innlent Eldgos áfram líklegasta sviðsmyndin en óljóst hvenær það yrði Innlent Brunavörnum hafi verið verulega áfátt Innlent Nú er hægt að taka Strætó alla leið að flugstöðinni Innlent Öllum heilbrigðisfulltrúum landsins sagt upp Innlent Fleiri fréttir Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Skýrar vísbendingar að Íranir eigi hlut að máli Á spítala eftir misheppnaða aftöku Flugmaður stakk kollega sinn og reyndi að brotlenda vélinni Rússar sagðir hafa ætlað að myrða Kasparov Flugvél beint annað eftir „slagsmál“ milli flugmanna Hundruð unglinga handteknir í Frakklandi Einn mannanna fimm hafi hringt sjálfur í neyðarlínuna Stríðsyfirlýsing sem gæti leitt til nýrra kosninga Fundu eldsneyti en engin sprengiefni í bílunum Hafa enn ekki ákveðið hvort rétta eigi aftur yfir Clancy Skoða byggingu evrópskrar geimstöðvar Enn lítið um svör í Englandi Fundu lúxusíbúð með golfhermi innan veggja fangelsis Síðustu hermennirnir fara frá Írak, aftur Eistar saka Rússa um fjölþáttaárás Búa í „helvíti á jörðu“ og borða illgresi til að halda lífi „Háfhrifavaldur“ fastur í kóresku síki Kynna fyrsta „núllosunarsvæði“ Danmerkur Norlén tekinn aftur við og boðar formenn á fund Kallaði ráðherra á fund vegna handtöku mannanna við herstöðina Stjórnandi hjá New York Times myrtur af tengdaforeldrum sínum Hlýtur ríflega sjötíu svipuhögg fyrir að koma fram án höfuðslæðu Sækja fram gegn Rússum í Dónetsk Hryðjuverkamönnunum grunuðu sleppt úr haldi Starship á sporbraut í fyrsta sinn Allir mennirnir breskir ríkisborgarar Spurði Xi hvort hann vildi kaupa bandarísk vopn Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Sjá meira
Fundu blóð úr norskri konu sem saknað er Lögregla í Noregi hefur staðfest að blóð sem fannst á jörðinni í norskum skógi í gær sé úr Janne Jemtland, 36 ára norskri konu sem hefur verið saknað síðan fyrir áramót. 7. janúar 2018 13:44