Árásarmaður ófundinn eftir líkamsárás á Laugavegi Kristín Ólafsdóttir skrifar 21. janúar 2018 08:49 Fangageymslur eru fullar eftir nóttina en mikill erill var hjá lögreglu. Vísir/Eyþór
Tilkynnt var um líkamsárás á Laugavegi í miðbæ Reykjavíkur laust eftir klukkan 3 í nótt. Gerandi fannst ekki, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Fórnarlamb árásarinnar hafði misst meðvitund en var að ranka við sér þegar lögregla kom á vettvang. Hann var fluttur á slysadeild til aðhlynningar og er árásarmaðurinn ófundinn. Laust eftir hálf 6 í morgun var svo tilkynnt um slagsmál í Austurstræti og var einn maður fluttur með sjúkrabíl á slysadeild vegna áverka á höfði og baki. Vitni gátu bent á tvo meinta árásarmenn og voru þeir handteknir og vistaðir í fangageymslu. Þá tilkynnti húsráðandi í miðbænum um innbrot um klukkan hálf 6 í morgun eftir að hafa vaknað við læti. Gerendur, maður og kona, létu sig hverfa af vettvangi en vitað er um hvaða fólk ræðir. Lögreglu bárust einnig upplýsingar um kannabisræktun í kjallaraíbúð. Um var að ræða nokkra tugi plantna og verður húsráðandi boðaður síðar í skýrslutöku. Fangageymslur lögreglu eru auk þess fullar eftir nóttina. Flestir voru vistaðir vegna ölvunar eða annarlegs ástands.
Lögreglumál Mest lesið Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Innlent Fleiri fréttir Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Sjá meira