Fordæmir Kastljósviðtalið við Sigmund Davíð Jakob Bjarnar skrifar 7. febrúar 2018 13:01 Siggi Stormur segir Sigmund afbragð annarra stjórnmálamanna. „
Ég er mikill Sigmundar-maður,“ segir Sigurður Þ. Ragnarsson jarð- og veðurfræðingur í samtali við Vísi. Sigurð þekkja landsmenn væntanlega betur sem Sigga Storm, veðurfræðinginn sem naut svo mikilla vinsælda fyrir nokkrum árum. Nýverið var stofnuð sérstök deild Miðflokksins í Hafnarfirði. Siggi var kosinn formaður. Hann fer hvergi leynt með aðdáun sína á formanni Miðflokksins, Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni. Siggi lýsir því að hann hafi verið Sjálfstæðismaður og gegndi trúnaðarstörfum fyrir þann flokk. En, hann var ekki sáttur. Honum leist engan veginn á þróun mála þar innan veggja, segist hafa verið orðinn áttavilltur eða allt þar til Sigmundur Davíð kom fram á sjónarsviðið.Úr hinu fræga Kastljósviðtali. Siggi segir að þar hafi Sigmundur verið grátt leikinn og Jóhannes Kr. Kristjánsson hrapaði í áliti hjá honum.„Mér finnst Sigmundur afburðastjórnmálamaður. Hann hefur sýnt það með verkum sínum og hann er fylginn sér.“Þú ert þá væntanlega í þeim hópi sem telur hann hafa verið grátt leikinn í tengslum við Wintrismálið sem svo leiddi til þess að hann hrökklaðist úr sæti forsætisráðherra? „Grátt leikinn? Ömurlega. Maðurinn hefur engin lög brotið. Það hljóta að vera takmörk,“ segir Siggi sem segist ekki vilja rifja það mál allt upp.En, það var farið illa með hann í hinu fræga Kastljósviðtali, sem ég fordæmi, ég fordæmi þau vinnubrögð að fá menn í viðtal á fölskum forsendum. Þetta er svo ljótt.“ Sigurður á hreinlega erfitt að finna orð til að lýsa því hvernig farið var með hans mann.Jóhannes Skúlason tók þátt í flutningum á skrifstofu flokksins á Suðurlandsbraut í gær.Vísir/Vilhelm„Það er ekki verið að tala um að ritskoða neitt heldur vildi hann koma undirbúinn til að svara því sem um var spurt. Sorglegt fyrir blaðamannastéttina að hafa horft uppá þetta. En, hún gengur stundum langt. Reynir að vera á línunni en þarna fór hún yfir hana. Jóhannes Kr. Kristjánsson, sem ég þekki ágætlega, féll niður í núll hjá mér við þetta.“Miðflokkurinn mættur í Fjörðinn En, svo tekið sé upp léttara hjal þá segir Sigurður að flokkurinn sé ekki bara Sigmundur. „Þarna er fjöldinn allur af fólki; á annað hundrað manns í Fjörukránni á Þorrablóti á vegum Miðflokksins. Rétt dugði neðri hæðin. Ótrúleg stemmning í gangi. Þetta er svo kraftmikið fólk en maður verður bara feiminn,“ segir Siggi. Og telur frjóan svörð í Hafnarfirði fyrir Miðflokkinn. Stofnun Hafnarfjarðardeildarinnar er liður í undirbúningi Miðflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar en Miðflokkurinn stefnir að því að fara fram í öllum helstu kjördæmum.Miðflokkurinn í Hafnarfirði. Sigurður Þ. Ragnarsson formaður, Elínbjörg Ingólfsdóttir ritari, Gísli Sveinbergsson meðstjórnandi, Jónas Henning Óskarsson meðstjórnandi og Tómas Ellert Tómasson meðstjórnandi.Sigurður er til þess að gera nýkominn frá Spáni hvar hann á hús, hann reynir að vera sem mest úti á Spáni. En, hann segist sposkur ekki vera kominn á ellilífeyrisaldur og því verði hann að koma til Íslands og sækja sér verkefni. „Gott veður eru ákveðin lífsgæði. Að þurfa ekki að loka sig inni bak við gardínur og fjasa yfir vondu veðri og myrkri. Mér líður aldrei vel í þessu myrkri. Þeir fara ekkert vel í mig þessir dimmustu mánuðir og vond veður. Hellist yfir mig skammdegisdrungi og ég verð þreyttur.“Veðurfræðingar ljúgaÞetta er alveg nýtt frá veðurfræðingi, sem alltaf eru jafn hressir á skjánum sama hvernig veður er? Þeir hlæja að veðrinu? „Já,“ segir Siggi og helst á honum að skilja að veðurfræðingar séu ekki allir þar sem þeir eru séðir. Og jafnvel að það sé rétt sem Bógómíl Font söng hér um árið, að þeir ljúgi. „Páll Bergþórsson kenndi mér það að maður ætti alltaf að peppa fólkið upp, en það er hægt að leika leikrit í sjónvarpi þó annað liggi að baki.“
Stj.mál Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Erlent Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Innlent Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Innlent Gefur meirihlutanum falleinkunn Innlent Fleiri fréttir Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Hildur svaraði fyrir uppsagnirnar Nota rústamyndavél við leit að Lúðvík Fækka um rúmlega sjötíu stöðugildi Húðflúr á hálsi kom upp um síbrotamann „Íbúar gera það ekki að leik sínum að panta flug á síðustu stundu“ Ríkisstjórnin samþykkir frumvarp ráðherra um herta innflytjendalöggjöf Segir Íslendinga á tímamótum og verða að bregðast við Sjötíu ákærðir fyrir svíkja fé út úr Landsbankanum Sorg hjá borgarstarfsmönnum og leitaraðgerð í Grindavík Gefur meirihlutanum falleinkunn Hætta skapaðist eftir að límt var fyrir linsu hraðamyndavélar „Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“ Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Sjá meira