Ökumaður sem lögreglan á Suðurnesjum stöðvaði um helgina vegna gruns um fíkniefnaakstur var með unga dóttur sína í bifreiðinni. Er þetta í annað skipti á skömmum tíma sem umræddur einstaklingur er stöðvaður í akstri af sömu sökum. Maðurinn var handtekinn og málið jafnframt tilkynnt til barnaverndarnefndar að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurnesjum.
Þá hafði lögregla afskipti af þremur einstaklingum á gistiheimili í umdæminu sem reyndust vera í mjög annarlegu ástandi. Í herbergi sem þeir voru í reyndist vera talsvert af meintum hvítum fíkniefnum í neysluumbúðum.
Þá var einn þremenninganna með meint kókaín innan klæða. Mennirnir voru handteknir og færðir á lögreglustöð.
Innlent