Haltu kjafti og vertu sæt! Valgerður Árnadóttir skrifar 8. mars 2018 11:53 Ég lærði seint að taka pláss, ég var svona mús í grunnskóla, ég var þæg og góð og gerði það sem mér var sagt þar til að ég kom í unglingadeild og fór í leiklist og var kennt að svara fyrir mig, það var bókstaflega staðið fyrir framan mig og öskrað ónotum í mig og mér skipað að svara fyrir mig Það var kona sem það gerði, hún heitir María Reyndal, ég á henni þökk skilið, hún lét rödd mína loks heyrast. Það var ekki vegna þess að ég hafði ekki sterkar kvenfyrirmyndir sem ég var þæg, ég hafði sannarlega sterkar og háværar konur í kringum mig, amma og mamma voru miklar baráttukonur femínisma og verkalýðsbaráttu, þær strituðu myrkranna á milli fyrr börnin sín og létu í sér heyra, einstæðar mæður með ríka réttlætiskennd. En það var kannski vegna þess að þær voru einstæðar sem ég var þæg, ég tengdi karlmannsleysi þeirra við baráttuandann, hvaða karlmaður þorði að vera með svona sterkum konum? Ég lærði snemma að það væri betra að vera soldið þæg, yfirmenn og kærastar kunnu að meta að maður væri ekki með of mikil læti, manni var verðlaunað fyrir það að haga sér eins þeir vildu. Ég var vel liðin í starfi hvert sem ég kom, en stundum gerðist eitthvað í vinnu þar sem réttlætiskennd minni var svo misboðið að ég lét í mér heyra, ég vann eitt sinn á karlmannsvinnustað í þjónustu við stórfyrirtæki, einn karlmaður hjá stærsta fyrirtækinu sem við þjónustuðum var alltaf mjög dónalegur við mig og samstarfsmenn mína, hann hellti sér yfir okkur við minnsta tilefni með svívirðingum. Eitt föstudagskvöld þegar ég var loks komin heim eftir mikla vinnutörn þar sem ég hafði eytt vikunni í að reyna þjónusta þennan mann með tilheyrandi niðrandi athugasemdum þá hringdi hann og hellti sér yfir mig og vinnuna sem við höfðum skilað og kallaði samtarfskonur mínar heimskar, hæfileikalausar og þaðan fram eftir götunum, þá fékk ég nóg, ég sagði honum “að hoppa upp í rassgatið á sér” og skellti á hann. Ég vissi hver afleiðing þess yrði, mér yrði vikið úr starfi, og það stóðst, mér var sama, ég gat ekki lengur unnið á vinnustað þar sem svona framkoma var liðin og yfirmenn mínir leyfðu viðskiptavinum að koma illa fram við starfsfólk sitt. Þessum manni var svo mánuði seinna vikið úr starfi á sínum vinnustað vegna hegðunar sinnar. Ég er ekki fyrsta og ekki síðasta konan til að vera rekin úr starfi fyrir að vilja lágmarks virðingu, mannsæmandi laun og vinnuskilyrði, þegar við höfum hátt þá hefur það afleiðingar og við þurfum að geta tekið þeim, en sumar konur hafa ekki val. Margar konur hafa ekki bakland sem styður þær, þær vinna í láglaunastörfum, eru margar erlendar og án fjölskyldu hér og hafa fyrir börnum að sjá, þær þora ekki að láta í sér heyra. Vinnuveitendur þeirra eru sjaldnast að kynna þeim réttindi sín og allt of algengt er að á þeim er brotið. Þegar #metoo sögur kvenna af erlendum uppruna komu í dagsljósið í vetur komst skíturinn upp á yfirborðið. Við urðum öll sjokkeruð yfir meðferðinni sem þær máttu sæta, ég varð að hætta að lesa þessar sögur því ég grét svo mikið, ég skammaðist mín, ég skammaðist mín fyrir að hafa ekki vitað af þessu og hafa ekki gert betur til að huga að konum í lægstu stéttum samfélagsins. En sem betur fer er fólk sem vill gera betur, það er ný dögun í uppsiglingu, Sólveig Anna Jónsdóttir og félagar hennar í B-lista hlutu yfirburða sigur í kosningum Eflingar, þar er fólk á ferð sem mun vinna fyrir lægstu stéttir og bæta kjör þeirra, kynna þeim réttindi sín og að framfylgja þeim. “Sólveig Anna skekur markaðinn” er fyrirsögn ársins í Viðskiptablaðinu, og það er satt, markaðurinn má vara sig, græðgisöfl mega vara sig, konur hafa rödd og munu láta í sér heyra. Innan Pírata eru sterkar konur sem ég hef kynnst gegnum starf mitt þar, konur sem eru með ríka réttlætiskennd, vinna fyrir bættum kjörum fólks og gegn spillingu. Við höfum loks stofnað Femínistafélag Pírata og fannst mér sérstaklega ánægjulegt að á stofnfundinn mættu karlar sem og konur og Helgi Hrafn er til að mynda með okkur í stjórn. Í Pírötum styðja karlmenn baráttu kvenna og það er mikilvægt, þar eru menn ekki hræddir við sterkar konur því þeir eru sterkir sjálfir. Eða eins og vinur minn sagði eitt sinn við mig þegar ég sagðist vera fráhrindandi fyrir karlmenn vegna “öfgafulla” skoðanna minna, “Hvers vegna ættir þú að vilja vera með manni sem ekki þolir baráttuanda þinn, karlmaður með baráttuanda lítur á það sem sinn helsta kost og aðdráttarafl, þú ættir að gera það líka!” Áfram Stelpur!Höfundur er stofnandi Puzzy Patrol og býður sig fram í prófkjöri Pírata í Reykjavík Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valgerður Árnadóttir Mest lesið Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir Skoðun Getur Gufunesið talist skapandi hverfi ef Listhúsið lokar? Narfi Þorsteinsson Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson Skoðun Skoðun Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Skoðun Skattfé er einnota Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Forvarnadagurinn er í dag María Heimisdóttir skrifar Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Réttindi eiga að vera raunveruleg Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Flokkur fólksins tekur í handbremsuna Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Áramótaheit ríkisstjórnarinnar Helgi Brynjarsson skrifar Skoðun Menning er ekki bisnessplan Birgir Þórarinsson skrifar Skoðun Þegar allt verður þjónusta Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir skrifar Skoðun Hvenær eru kjósendur blekktir? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir skrifar Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir skrifar Skoðun Almannatryggingar í 90 ár Alma D. Möller skrifar Skoðun Frá styrkjum til stefnumótunar Hrönn Ingólfsdóttir skrifar Skoðun Boltinn er hjá ykkur Matthías Bjarnason skrifar Skoðun Golfið lækning við hálfónýtum maga og þörmum? Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Þegar fyrirsögnin finnur orsökina á undan rannsókninni Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Fleiri leiðir til Evrópusamstarfs Erna Bjarnadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Skoðun Af hverju má ég ekki eiga Chihuahua af því að ég bý í húsnæði fyrir fatlað fólk? Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar