Toyota ætlar að byggja á þessari velgengni og býður hann nú í miklu fleiri litríkum útfærslum. Hann er þó líka orðinn aksturshæfari bíll því talsvert hefur verið átt við undirvagninn og einnig ytra útlitið og á pöllunum stóðu margar ferlega flottar litaútfærslur hans.
Þriðja kynslóð Auris gullfalleg
Stóra frumsýningin hjá Toyota að þessu sinni var á þriðju kynslóð Auris og þar fer svo ánægjuleg breyting að leitun er að fallegri bíl í þessum stærðarflokki. Nokkuð þarf þó að bíða eftir þeim snoppufríða því hann mun ekki rata á göturnar fyrr en á nýju ári. Eitt það ánægjulegasta við nýja gerð Auris er 180 hestafla Hybrid-drifrásin sem í boði verður í bílnum og því verður þessi fremur netti bíll orðinn mjög sprækur.Toyota sýndi einnig keppnisútfærslu hins nýja Supra-sportbíls sem kemur út síðar í hefðbundinni útfærslu fyrir almenning, en á honum má sjá hvað kaupendur Supra eiga von á góðu. Þá var á pöllum Toyota einnig Dakar-keppnisbíll Tommi Hirvonen og þolakstursbíll Toyota úr Le Mans-keppninni, en Toyota hefur verið að auka þátttöku sína í keppnisakstri ýmiss konar á síðustu árum.