Á lokadegi landsþings Viðreisnar var kosin ný stjórn auk þess sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir var endurkjörin formaður flokksins og Þorsteinn Víglundsson varaformaður.
Nýja stjórn Viðreisnar skipa þau Benedikt Jóhannesson, fyrrverandi fjármálaráðherra, Hildur Betty Kristjánsdóttir, Karl Pétur Jónsson, Sara Dögg Svanhildardóttir og Sveinbjörn Finnsson.
Friðrik Sigurðsson og Ingunn Guðmundsdóttir eru varamenn stjórnarinnar.
Landsþingið fór fram um helgina í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ.
Ný stjórn Viðreisnar
Tengdar fréttir
Tveir flokkar leggja línurnar
Tveir stjórnmálaflokkar af þeim átta sem eiga kjörna fulltrúa á Alþingi halda fundi fyrir félagsmenn sína um helgina.
Sveitarstjórnarmál setja svip sinn á landsþing Viðreisnar
Landsþing Viðreisnar hefst í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ síðdegis í dag og stendur fram á sunnudag.
Meðvirkni og ótti við breytingar
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, gerði jafnréttismál, fjölþjóðasamvinnu og frjálslyndi að umfjöllunarefni sínu í stefnuræðu.