Ný tegund götuljósa sögð skaðleg svefnfriði og sjón fólks Kjartan Kjartansson skrifar 9. apríl 2018 15:15 Ljósið frá LED-perum er mun bláleitara en frá hefðbundnum kvikasilfurs- og natríumperum. Vísir/AFP
Lýðheilsustofnun Englands varar við því að ný kynslóð svonefndra LED-ljósa sem verið er að taka í notkun í ljósastaurum geti raskað svefnfriði fólks og jafnvel skaðað sjón þess. Eins geti ljósin reynst eldri ökumönnum skeinuhætt. Fjöldi sveitarfélaga á Englandi hefur skipt út eldri ljósaperum fyrir LED-ljós undanfarin ár þar sem þau síðarnefndu eru mun ódýrari í rekstri og nota mun minni orku. Sá galli er hins vegar á gjöf Njarðar að ljósið frá LED-perunum er bláleitara en frá eldri tegundum pera. Lýðheilsustofnunin segir að það kunni að vera gott til að halda ökumönnum árvökum. Mörgum gæti hins vegar þótt ljósið óþægilegt. Þá sé þekkt að mikill styrkur blás ljós geti valdið skaða á sjónhimnu augna, að því er segir í frétt The Telegraph. Séu ljósin ekki deyfð á kvöldin geti þau truflað fólk, ekki síst ung börn og eldra fólk sem sé sérstaklega viðkvæmt fyrir slíku ljósi. LED-ljós í nýrri gerðum bíla geti þannig verið eldri ökumönnum erfiður ljár í þúfu þegar þeir mæta þeim í myrkri. Læknasamband Bandaríkjanna hefur einnig varað við bláleitu ljósi LED-pera og að það geti haft áhrif á svefn fólks. Það hefur mælt með því að aðeins daufustu tegundir LED-pera séu notaðar og að þeim sé betur stýrt til þess að forðast glampa af þeim. Talsmaður Sambands enskra sveitarfélaga segir að LED-ljósin hafi verið sett upp þannig að þau lýsi aðeins upp þau svæði sem þess þarfnast. Ljósi geti verið skaðlegt augum fólks hvort sem það er náttúrulegt eða ekki.
Tækni Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Lægðin fyrr á ferðinni Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Fleiri fréttir „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Sjá meira