Sjáðu sjálfsmarkið, stoðsendinguna og fiskaða vítið hjá Andra Rúnari Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 9. apríl 2018 14:00 Andri Rúnar Bjarnason með íslenska landsliðinu í Indónesíu. Mynd/KSÍ
Andri Rúnar Bjarnason var í sviðsljósinu þegar Helsingborg byrjaði tímabilið á 3-1 sigri á Öster í sænsku b-deildinni um helgina. Andri Rúnar jafnaði markametið í efstu deild á Íslandi með Grindavík í Pepsi-deildinni í fyrra en fyrsta markið hans í sænsku b-deildinni var aftur á móti í vitlaust mark. Andri Rúnar var þá reyndar búinn að eiga þátt í tveimur fyrstu mörkum Helsingborg. Hann átti fyrst stoðsendingu á Max Svensson og svo fór hann upp í skallaeinvígi eftir fyrirgjöf og sá með því til þess að miðverðir Öster náðu ekki að koma boltanum frá. Max Svensson fékk fyrir vikið boltann í dauðafæri og skoraði sitt annað mark í leiknum en seinna markið hans kom í uppbótartíma seinni hálfleiks. Í upphafi seinni hálfleiks varð Andri Rúnar hinsvegar fyrir því óláni að skalla hornspyrnu Öster í eigið mark. Markvörður Helsingborg missti óvænt af boltanum og fipaði Andra Rúnar sem skallaði boltann í eigið mark á marklínunni. Andri Rúnar bætti fyrir þetta með því að fiska vítaspyrnu og úr henni skoraði Darijan Bojanic og innsiglaði með því 3-1 sigur Helsingborg. Expressen hefur tekið saman helstu atriði leiksins og má sjá þau hér fyrir neðan.
Fótbolti á Norðurlöndum Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn Fyrrverandi Stjörnumaður lést fertugur að aldri Handbolti Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Fleiri fréttir „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til Fær samúð frá stjórninni vegna meiðsla KSÍ fær 300 milljónir komist stelpurnar okkar á HM FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Gaf leikmönnum Man United frídag eftir útreiðina í Como Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ Sjá meira