Hafa ekki fengið formlegt svar um yfirtöku á máli Sunnu Elvíru Birgir Olgeirsson skrifar 2. apríl 2018 12:13 Sunna Elvíra á sjúkrahúsinu á Malaga. Vísir/Egill
Íslensk lögregluyfirvöld hafa ekki fengið formlegt svar um yfirtöku á rannsókn á máli Sunnu Elvíru Þorkelsdóttur - sem lamaðist á Spáni - og geta því ekki ennþá sagt til um hver réttarstaða hennar er.Síðastliðinn fimmtudag var greint frá því að farbanni yfir Sunnu Elvíru hefði verið aflétt og undirbúningur hafinn við að flytja hana til Íslands. Páll Kristjánsson, lögmaður Sunnu Elvíru, staðfesti þetta í samtali við fréttastofu og sagði að Sunna Elvíra verði flutt hingað með sjúkraflugi. Vonaðist hann til að það yrði sem allra fyrst. Hann sagði enn fremur að ekkert benti til þess að Sunna Elvíra hefði réttarstöðu sakbornings, hvorki á Spáni né hér á landi. Hún hefði mögulega réttarstöðu vitnis þegar hún kæmi hingað til lands. Í svari íslenskra lögregluyfirvalda til fréttastofu kemur fram að þau hafi ekki fengið formlegt svar við réttarbeiðni um yfirtöku rannsóknar á málinu þótt þeim sé kunnugt um að viðbrögð spænskra yfirvalda séu jákvæð. Staðan verður metin þegar og ef gögn frá spænskum lögregluyfirvöldum verða afhent og þá tekin afstaða til réttarstöðu viðkomandi einstaklinga. Mál Sunnu Elvíru hefur vakið athygli flestra landsmanna frá því hún féll niður af svölum á heimili sínu á Malaga á Spáni þann 17. janúar síðastliðinn. Sunna Elvíra hlaut mænuskaða í því slysi og er lömuð fyrir neðan brjóst, hún hefur nú verið úrskurðuð lömuð fyrir lífstíð. Eiginmaður hennar, Sigurður Kristinsson, var handtekinn við komuna til Íslands eftir að hún slasaðist vegna gruns um aðild að „Skáksambandsmálinu“ svokallaða og var Sunna Elvíra sett í farbann í kjölfarið.
Mál Sunnu Elviru Tengdar fréttir Sunna Elvíra er væntanleg til landsins á næstu dögum Páll Kristjánsson lögmaður Sunnu segir að lögregla hafi lokið skoðun á hennar máli. 29. mars 2018 08:29 Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Sjá meira
Sunna Elvíra er væntanleg til landsins á næstu dögum Páll Kristjánsson lögmaður Sunnu segir að lögregla hafi lokið skoðun á hennar máli. 29. mars 2018 08:29