Íris segist hafa ákveðið að verða við áskörun um að gefa kost á sér í fyrsta sæti lista hins nýja félags.
„Ég er stolt og þakklát fyrir það traust sem mér er sýnt með þessari áskorun. Þessa ákvörðun hef ég tilkynnt forsvarsmönnum hins nýja bæjarmálafélags - Fyrir Heimaey,“ skrifar Íris.
Tilkynnt var um framboð félagsins Fyrir Heimaey í vikunni en formaður þess er Leó Snær Sveinsson. Þá voru Kristín Hartmannsdóttir, Kristín Ósk Óskarsdóttir, Rannveig Ísfjörð og Leifur Gunnarsson einnig kjörin í stjórn.
Þá hefur nokkur ólga verið innan Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum, sem þar hefur farið með völd undanfarin ár, en ekkert varð af sögulegu prófkjöri sem átti að halda innan flokksins.
Þá kom fram í vikunni að Elliði Vignisson, bæjarstjóri Vestmannaeyja, skipar að eigin beiðni fimmta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í vor eftir 12 ár í fyrsta sæti listans. Íris hafði sjálf talað mjög fyrir prófkjöri.