Fótbolti

Guðmundur og Jón Guðni léku allan leikinn í sigri Norrköping

Einar Sigurvinsson skrifar
Guðmundur Þórarinsson lék allan leikinn á miðju Norrköping
Guðmundur Þórarinsson lék allan leikinn á miðju Norrköping vísir/getty
Íslendingaliðið IFK Norrköping sigraði Kalmar FF í þriðju umferð sænsku úrvalsdeildarinnar í dag. Leiknum lauk með 3-1 sigri Norrköping.

Þeir Guðmundur Þórarinsson og Jón Guðni Fjóluson léku allan leikinn í liði Norrköping. Arnór Sigurðsson kom ekkert við sögu í leiknum.

Með sigrinum með Norrköping í 2. sæti sænsku deildarinnar með 7 stig, en Hammarby sem er í 3. sætinu með 6 stig á einn leik til góða.

AIK sigraði Djurgården 2-0, en Haukur Heiðar Hauksson sat allan tímann á varamannabekknum hjá AIK.

AIK fór með sigrinum einnig í 7 stig og í efsta sæti deildarinnar á markatölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×