James kom Cleveland í lykilstöðu með þriggja stiga flautukörfu Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. apríl 2018 07:30 LeBron James fagnað eftir leik. Vísri/Getty
LeBron James skoraði þriggja stiga flautukörfu sem tryggði Cleveland þriggja stiga sigur á Indiana, 98-95, í fimmta leik liðanna í rimmu þeirra í fyrstu umferð úrslitakeppninninar í NBA-deildinni í nótt. Með sigrinum tók Cleveland 3-2 forystu í einvigínu og getur með sigri í Indianapolis á föstudagskvöld tryggt sér sigur í rimmunni eftir að hafa lent tvívegis undir. James átti stórleik. Hann skoraði 44 stig, tók tíu fráköst og gaf átta stoðsendingar. Hann nýtt enn fremur öll fimmtán vítaskotin sín í leiknum. Kyle Korver skoraði nítján stig fyrir Cleveland. Houston er komið áfram í næstu umferð eftir að hafa unnið Minnesota á heimavelli, 122-104, og þar með rimmuna 4-1. Clint Capela var með 26 stig og James Harden 24 fyri Houston. Houston mætir annað hvort Utah Jazz eða Oklahoma City Thunder í næstu umferð en Utah er með 3-2 forystu í þeirri rimmu þrátt fyrir tap á útivelli í nótt, 107-99. Russell Westrbrook skoraði 45 stig fyrir Oklahoma City. Að síðustu vann Toronto sigur á Washington, 108-98, og náði þar með 3-2 forystu í einvíginu. DeMar DeRozan skoraði 32 stig fyrir Toronto sem hafði tapaði síðustu tveimur leikjum í rimmunni, sem báðir fóru fram í Washington. Næsti leikur er einmitt í Washington á föstudag. Úrslit næturinnar: Toronto - Washington 108-98 (3-2) Cleveland - Indiana 98-95 (3-2) Houston - Minnesota 122-104 (4-1) Oklahoma City - Utah 107-99 (2-3)
NBA Mest lesið Biles flutt á spítala og er þakklát að vera á lífi Sport Ollie Kane kynntur til leiks Fótbolti „Hann breytti kúlturnum“ Handbolti Býst við skömmum frá KSÍ Íslenski boltinn Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Íslenski boltinn HM-minning: Átti draumamark Maradona líka að vera dæmt af? Fótbolti Rúmlega helmingur hlaupara þurfti að hætta Sport Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Íslenski boltinn „Ég verð að spila“ Enski boltinn Slagsmál og tvö rauð spjöld hjá Portúgölum Fótbolti Fleiri fréttir Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Búinn að vinna titilinn fyrir fyrsta leik Mála neðanjarðarkerfið í litum Knicks Steph Curry gerir risasamning við kínverskt íþróttamerki Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Sjá meira